sunnudagur, 29. júní 2014

Við getum haft áhrif


3.Kafli – Hvenær líður „mér“ best?


IX.Við getum haft áhrif

Við getum haft áhrif á allt í umhverfi okkar.   Við getum bætt hlutina, komið með nýjar og betri hugmyndir, bætt samskipti okkar og annarra, bætt líðan okkar og annarra, bætt umhverfið með því að ditta að því á þann hátt sem maður helst vill og hefur rétt til.   Við getum haft áhrif á það sem við viljum hafa áhrif á!    Við getum haft jákvæð áhrif á allt og alla í kringum okkur.   Hvaða áhrif vilt þú hafa í þínu umhverfi og á þitt umhverfi?    Í þínum áhrifum felst minning þín!

q  Aðferð: Spyrja nemendur hvað þeir vilji hafa áhrif á.   Skrifa niður stikkorð og byrja að vinna í því með því að setja upp skema með dagsetningum og reitum til að skrifa niður árangurinn.   Taka í ferlið eina klukkustund, einn dag, eina viku, einn mánuð eða eitt ár.   Allt eftir því hversu flókin eða umfangsmikil áhrifin eru sem hver og einn nemandi ætlar að hafa.
                                                                Höfum áhrif – látum okkur varða!

Engin ummæli:

Skrifa ummæli