sunnudagur, 8. júní 2014

Jákvæð hvatning



HVERNIG, HVER, HVAR, HVENÆR, HVERSVEGNA?

2. Kafli – hvernig persóna er “ég”? 


IV.Jákvæð hvatning
v Tilgangur:  Leggja áherslu á jákvæða hvatningu og það að gefa val.

Ávallt ber að líta á það góða í því sem nemandinn gerir og hrósa því.   Hvetja til frekari „sigra“ á því sviði sem nemandinn sýnir að hann hefur áhuga á eða hæfni til.

q Aðferð: segja „já, og...“ en ekki nota „já, en...“   Já, og hvaða árangri heldurðu að þú náir ef þú æfir þig í þessu?“   „Já, og þegar þú skýtur næst á handboltamarkið hvernig ætlaðu þá að gera það?“...

Hvetja nemanda til að ná ákveðnu markmiði með því að verðlauna eins og áður hefur komið fram, til dæmis með stjörnugjöf.   Best er þá að hafa stjörnugjöfina á stað þar sem nemandinn getur skoðað stjörnugjöfina sína þegar hann vill.  Slík verðlaun er ágæt en auðvitað er bara best að nemandinn læri að hann uppsker eins og hann sáir!

Hvetja nemandann og hjálpa honum að skrifa niður markmiðin sín, niðurbrotin í lítil skref, sem „á að vera hægt“ að ná.   Passa að markmiðin séu raunhæf og að það sé þannig að nemandinn eigi að geta náð þeim, með því að taka eitt skref í einu.  Passa samt að brjóta ekki niður stóru markmiðin, því þeim er oft hægt að ná, bara ef viljinn er nógu mikill!

Forðast ber að hóta nemanda.   Ef hegðun er neikvæð ber að líta fram hjá þeirri hegðun ef það er hægt, ekki veita nemanda athygli út á neikvæða hegðun.   Ef ekki er hægt að líta fram hjá hegðun hjá barnungum nemanda ber að horfa í augu hans, jafnvel taka um hendur hans, og spyrja hann hvers vegna hann hegði sér á þann hátt sem hann hegðar sér.   Ekki gefa eftir fyrr en komið er svar við spurningunni.     Svara: „já, og hvað heldurðu að sé hægt að gera til að laga það?“   Bíða eftir svari og hvetja til þeirrar „góðu“ aðgerðar sem kom fram í svari nemandans eða aðstoða nemandann kurteislega við að finna lausn.

q Aðferð: Hrósa, hrósa, hrósa fyrir jákvæða hegðun og vinna í því að hrósið yfirtaki og útiloki á endanum neikvæða hegðun.   Gera mætti punkt í viðverulista nemanda eða í þar til gerða minnisbók fyrir góða hegðun.   Rauður punktur gæti merkt neikvæða hegðun og grænn punktur gæti merkt jákvæða hegðun.  Ávallt skal muna að hrósa fyrir jákvæða hegðun.   Ekki skrifa niður og skilgreina hegðunina heldur bara gera punktana og telja þá síðan saman til dæmis í vikulok / mánaðarlok.   Með skráningunni er auðveldara að sjá smám saman breytt hegðunarferli verða til. 
  
v Tilgangur: Gefa valkosti til að kenna nemandum að hann hafi val, ákveðna stjórn.  

q Aðferð: Leyfa nemendum að velja á milli valgreina í öllu námi.   Í tónlist má leyfa þeim að velja á milli tveggja verka til að æfa það skiptið og svo má áfram telja. 
q Aðferð: Það er mjög gott að gefa mjög ungum nemendum tvo valkosti: „má bjóða þér að fara í þessa grænu peysu eða þessa gulu?“   „Má bjóða þér brauð með osti eða kæfu?“ 
q Aðferð: Leyfa ungum nemendum að velja sjálfir fötin sín.   Nemandinn er ótrúlega naskur á það að velja í stíl ef honum er kennt það!   Kenna nemendum að bursta tennurnar, fara á snyrtinguna, þvo sér í baði og svo framvegis.  Þó stundum sé rétt hjálparhönd og aðstoð veitt við að gera hlutina enn betur þá er alltaf best að leyfa nemandanum að spreyta sig – þannig lærir hann og verður mikið fyrr sjálfbjarga.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli