laugardagur, 21. júní 2014

Forðast það sem ég vil ekki gera þó sumt þurfi maður að gera!






3.Kafli – Hvenær líður „mér“ best?




II.Forðast það sem ég vil ekki gera þó sumt þurfi maður að gera!

Flestir geta leitast við að forðast verkefni og aðstæður sem þeir vilja ekki vera í.   Málið er að leita leiða til að komast úr þeim verkefnum eða aðstæðum með því að koma sér sjálfur út úr því eða leita aðstoðar til að svo megi verða.    

Sumt verður hver og einn að gera og það er að taka ábyrgð á grundvallarverkefnum í námi, á heimilinu og í vinnu.   Ef það er eitthvað sem nemandinn vill síður gera þá er mögulega hægt að skipta á verkefni við einhvern annan .   Aðalatriðið snýst um að setjast niður, átta sig á því sem maður ekki vill gera, annaðhvort sætta sig við það, eða leita leiða, jafnvel samningaleiða, til að komast frá því og einbeita sér frekar að því sem maður vill gera eða eyða tímanum í. 

Engin ummæli:

Skrifa ummæli