LÍFSLEIKNI
Listin að vera leikinn í lífinu
Úrdráttur úr bókinni LÍFSLEIKNI - Listin að vera leikinn í lífinu.
Bókin er fáanleg í öllum verslunum Eymundsson.
1.Kafli - Lífsleikni; leiðbeinandinn og nemandinn
I. Gildi lífsleikninnar
Lífsleikni - það að vera leikinn í lífinu, hefur mikla þýðingu fyrir alla nemendur, til aukinnar þekkingar, aukins þroska og sjálfsvitundar. Með aukinni þekkingu og sjálfsvitund eykst skilningur á lífinu og tilverunni.
II. Markmið lífsleikninnar
Byrja strax í æsku að auka sjálfstraust, sjálfsvitund og virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum
Leyfa nemendum að skynja að þeir geti valið sína lífsleið og hvað þeir vilji fást við
Veita nemendum stuðning til að gera/framkvæma það sem þeir vilja með öllum tiltækum ráðum
Veita nemendum þann grunn sem þeir þurfa til að fá þekkingu og leita hennar á réttum stöðum
Taka út ótta og setja inn áræðni, framtak og bjartsýni – kenna nemendum að greina hvað veldur neikvæðni og niðurrifi og hvað skapar vellíðan og hamingju
Leyfa börnum að vera þau sjálf undir sjálfsögðum jákvæðum aga byggðum á virðingu, tillitssemi og trausti sem gerir nemendur hér á jörð
að einstökum einstaklingum sem taka virkan þátt í samfélaginu
III. Hlutverk leiðbeinandans
Hlutverk leiðbeinandans er í raun auðvelt vegna þess að leiðbeinandinn þarf ekki að vita allt heldur vísa veginn að þekkingunni.
Hlutverk leiðbeinandans felur í sér að leyfa nemandanum að „leita“ þekkingar, upplifa þekkingu og reynslu en ekki í því aðkenna nemandanum allt
Nemandi verður mikið ánægðari að „uppgötva,“ finna út úr hlutunum,
en að upplifa að honum sé sagt allt. Eigin reynsla er besti kennarinn og því er það hlutverk leiðbeinandans að skapa jarðveg fyrir þann reynslugrunn.
Fullorðin manneskja mundi ekki vilja að yfirmaður í vinnu sæti við hliðina á sér og segði sér í sífellu hvað eigi að gera næst! Nemandinn vill það í raun ekki heldur! Nemandinn vill hafa einhvern til að spyrja, sem getur
IV. Samningur milli leiðbeinanda og nemanda
sagt honum hvar svörin er að finna og vinna síðan sjálfur úr málunum eins og fullorðin manneskja gerir. Nemandi sem hefur næg spennandi verkefni heldur betur einbeitingu í lærdómi skólans og lífsins, ef hann hefur eitthvað til að vinna að en er ekki gert skylt að sitja og meðtaka.
Leiðbeinandi þarf alls ekki að kunna allt sem verið er að
„kenna“ heldur vera til staðar til að rökræða, svara spurningum og vísa mögulega á lausnir, til dæmis með því að benda á að upplýsingar sé hægt að finna í ákveðnum bókum, á netinu, á bókasöfnum, á vettvangi og svo framvegis.
Tími til Þekkingarleitar og úrvinnslu þeirrar þekkingar og þar með möguleiki á eigin þroska er það mikilvægasta sem nemandi fær frá leiðbei
nanda. Leiðbeinendur eiga að vera lærifeður nemenda, þeir sem hafa meiri visku og geta vísað veginn.
Leiðbeinendur, hvort sem þeir eru í menntastofnun eða tengjast nemanda utan skóla, eru yfirleitt að gera sitt besta fyrir nemandann. En það skemmtilega er að það er endalaust hægtað þróa sig og bæta og verða enn hæfari í að miðla visku, því maður lærir jú svo lengi sem maður lifir!
IV. Samningur milli leiðbeinanda og nemanda
Tilgangur: Til að ná fram fullu trausti, án misskilnings, er hægt að gera skriflega samninga um alla hluti. Það er hægt, til dæmis, með því að leiðbeinandi býður nemanda ákveðna hluti gegn því að nemandi uppfylli ákveðin skilyrði.
Aðferð: Um getur verið að ræða að ef nemendur klára ákveðið verkefni á ákveðnum tíma þá verði, til dæmis, boðið upp á að fara í rannsóknarferð um nágrenni skólans.
Aðferð: Heima við er hægt að bjóða upp á að ef barn taki til í herberginu sínu einu sinni í viku allan þann mánuð þá verði uppáhaldskakan bökuð í mánaðarlok. Í næsta mánuði er síðan fundið upp á einhverju enn og öðru. Samningurinn getur verið á einu blaði eða litlum miða, formlega uppskrifaður eða bara með einfaldri skýringu „taka til í herbergi
einu sinni í viku, allan septembermánuð. Verðlaun: uppáhaldskaka í mánaðarlok.“ Þetta má yfirfæra yfir á allt mögulegt og útfæra á þann hátt sem best hentar.
Aðferð: Einnig er hægt að safna punktum, stjörnum, límmiðum eða öðru og þegar ákveðnum fjölda er náð þá komi til verðlaun sem geta verið, til dæmis, bíóferð. Í raun erum við alltaf að gera samninga um hitt og þetta þó við tökum ekki eftir því!
Veltu því fyrir þér hvenær þú ert að gera samning!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli