HVERNIG, HVER, HVAR, HVENÆR, HVERSVEGNA?
2. Kafli –
hvernig persóna er “ég”?
VI.Eigin forsendur
v Tilgangur: Kenna nemendum sjálfstæði og að “vinna”
fyrir sjálfa sig í lífinu. Þar með er
ekki verið að segja að nemandi eigi ekki að aðstoða við frágang á sínu
vinnustæði og sínu umhverfi og við heimilisstörf, en þá út frá því að það að
ganga frá eftir sig sé eðlilegur hlutur.
Aðstoð og hjálp við aðra er síðan annar útgangspunktur sem er val
nemandans en við höfum komið inn á það hér áður í bókinni.
q Aðferð: Kenna nemanda að lifa lífinu á eigin
forsendum. Hjálpa nemanda að vera
sjálfstæður, það er að segja, að gera hlutina út frá eigin hjarta. Ekki láta aðra teyma sig áfram – ekki gera
eitthvað bara til að þóknast öðrum.
Kenna nemanda að fylgja ekki hópnum, bara til að fylgja hópnum, heldur
vera hann sjálfur innan hópsins og í öllum aðstæðum. Velja, hvort fylgja eigi hóp eða fara eigin
leiðir. Hafa þor til að segja nei ef
eitthvað er í boði sem viðkomandi vill ekki og muna að fylgja eigin löngun óháð
því sem aðrir gera. Það er gríðarlega
mikilvægt að treysta eigin dómgreind.
Ekki láta segja sér hvað eigi að gera og
hvernig eigi að gera það í öllum aðstæðum. Auðvitað er gott að leita sér þekkingar og
upplýsinga en síðan þarf að nýta eigin dómgreind til að skilja kjarnann frá
hisminu, það er að segja að nýta eigin dómgreind til að ákveða hvaða
upplýsingum nemandinn vilji ganga út frá.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli