HVERNIG, HVER, HVAR, HVENÆR, HVERSVEGNA?
2. Kafli –
hvernig persóna er “ég”?
V.Ánægð með sjálfri/um sér
v Tilgangur:
Kenna nemendum að vera ánægðir bæði með sjálfum sér, einir með sjálfum sér, og
vera ánægðir með öðrum, í félagsskap annarra.
q
Aðferð:
“Hvað gerir þú, dundar þér við, þegar þú ert ein/n?“ Það getur nú verið notalegt stundum. “Hvað finnst þér skemmtilegast að gera með
öðrum?”
Oft er sagt að heima sé
best.
Heima er best!
Það er gaman að ferðast
og fara á nýja staði og hitta nýtt fólk en ég held að við getum öll verið
sammála um að alltaf er einnig gott að koma heim aftur. En hvað er heim? Oftast erum við þá að tala um híbýli okkar,
þar sem við höfum búsetu. En heimili
okkar er í raun hjá okkur sjálfum, í hjarta okkar. Okkur á að geta liðið vel þar sem við erum,
á hverjum stað, bara ef við leyfum okkur það.
Stundum er sagt við okkur: “Er einhver heima“ ef við bregðumst ekki
hratt við þegar einhver er að reyna að tala við okkur og við svörum ekki! Það er nokkuð til í þessu því þarna er verið
að vísa í að sálin og hugurinn séu í nú-inu eða heimavið! Verum við sjálf – í nú-inu heima við – hvar
sem við erum!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli