þriðjudagur, 24. júní 2014

Kunna að segja "nei"



3.Kafli – Hvenær líður „mér“ best?




V.Kunna að segja „nei“

Við þurfum ekki að vera „já“ manneskjur!    Segjum bara já, þegar og ef við viljum segja já.
Við verðum að kunna að segja „nei“ ef við viljum ekki eitthvað og við verðum einnig að kunna að meðtaka „nei“ ef einhver segir það við okkur.   Þegar einhver segir „nei“ við okkur er viðkomandi ekki að hafna okkur persónulega, heldur einfaldlega að segja „nei“ við því sem var í umræðunni.

q  Aðferð: Æfing með nemendum getur falist í því að æfa nemendur í að leggja fram staðhæfingar og beiðnir og æfa nemendur í að játa þeim og neita.   Nemandinn verður í hvert skipti að „túlka“ það sem hinir segja og æfist þar með í því að aðgreina umræðuna frá sjálfum sér, þannig að umræðan snúist um umræðuna en ekki einstaklingana sem eru að tala saman.   

Engin ummæli:

Skrifa ummæli