miðvikudagur, 18. júní 2014

Upplifunin




HVERNIG, HVER, HVAR, HVENÆR, HVERSVEGNA?

2. Kafli – hvernig persóna er “ég”? 


XI.Upplifunin

v  Tilgangur: Allir upplifa atburði, talað mál og lesið mál á ólíkan hátt.   Þess vegna verður að taka tillit til upplifunar nemenda sem upplifa umhverfið á ólíkan hátt.

ü  Skýring: Allir hafa ólíka upplifun af öllum aðstæðum.   Enginn hefur 100% (að öllu leyti) sömu upplifun.    Hópur fólks á sömu tónleikum upplifir kannski í heildina ánægju með góða tónleika en sumir geta fundið til sorgar við að heyra fallegt lag, og aðrir fundið til mikillar gleði.   Allt sem við upplifum tengist bakgrunni okkar, því sem við höfum upplifað áður.   Öll upplifun er tengd við eldri upplifun og upplifanir sem við ein áttum á okkar einstaka hátt, þannig að hver upplifun er einstök í heiminum.

q  Aðferð: Tala um ýmis  konar aðstæður og spyrja nemendur hvernig þeir upplifi þær.   Hægt er að taka mörg dæmi til að sýna fram á misjafnt viðhorf nemenda til aðstæðna.

v  Tilgangur: Hvað þýðir það að „upplifa“ eitthvað sem manni finnst maður hafa upplifað áður?

ü  Skýring: Oft upplifum við það að við höfum áður verið í ákveðnum aðstæðum.   Þessi upplifun hefur verið nefnd „déja vu“ eða „núþegar séð“ það er að segja að okkur finnst eins og við séum að endurupplifa eitthvað.   En í raun er það sem gerist það að við erum að upplifa í nú-inu raunveruleikann sem við áður höfðum séð með því að horfa inn í framtíðina.   Við vorum áður búin að fá smá innlit í handrit lífs okkar og það er það innlit sem við síðan upplifum.   Þess vegna erum við að upplifa „nú-ið“ þegar þetta gerist.   Þetta er eins og að grípa ofan í bók og lesa aftar í bókinni eða lesa öftustu blaðsíðuna fyrst.   Við vitum í undirvitundunni okkar hvað er framundan og stundum „sjáum“ við það.  

q  Aðferð: Biðja nemendur að taka eftir því næst þegar þeir skynja “nú-upplifanir.”

Engin ummæli:

Skrifa ummæli