HVERNIG, HVER, HVAR, HVENÆR, HVERSVEGNA?
2. Kafli –
hvernig persóna er “ég”?
VII.Hamingjan
ü
Lykilorð: Kærleikurinn.
v Tilgangur:
Sýna fram á að kærleikurinn sé lykillinn að hamingjunni.
q Aðferð:
Sýna sjálfum sér og öðrum kærleika. Það
eina sem getur komið í veg fyrir hamingju er ótti. Ótti getur verið til staðar svo skilningur á
kærleikanum verði meiri. En þá er það
verkefni lífsins að útrýma óttanum skref fyrir skref og lifa í kærleika. Í biblíunni stendur: “elskaðu aðra eins og
sjálfan þig” en í því felst að þú átt fyrst að elska sjálfan þig til þess að
vera fær um að elska aðra. Þarna erum
við ekki að tala um sjálfselsku sem getur til dæmis flokkast sem
eigingirni, heldur erum við að tala um
ást, að elska sjálfan sig og aðra undir merkjum ástar. Það er mjög mikilvægt að læra að njóta eigin
félagsskapar, því það er enginn nema þú sjálf/ur sem skapar þína eigin
hamingju. Manneskjan er félagsvera og
nýtur þess að vera í félagsskap en hver og einn verður einnig að njóta þess að
vera í eigin félagsskap til að geta notið þess að vera í félagsskap annarra. Hamingjan kemur ekki frá öðrum, það er ekki
hægt að bíða eftir því að einhver annar geri mann hamingjusama/n, það erum við
sjálf og enginn annar sem skapar okkar hamingju.
q Aðferð: Hafa að leiðarljósi að það sem markar brautina að hamingjunni er:
1.
Að hafa heiðarleika að leiðarljósi.
2.
Að vera örlátur.
3.
Að varðveita mannvit sitt með því að forðast
óhóflega neyslu áfengra drykkja og koma í veg fyrir tóbaksávana og fíkn í önnur
skaðleg efni.
Reglur um hamingju: Eitthvað að fást við, einhvern að
elska, eitthvað að vonast eftir.
Immanuel Kant
Það er hægt að segja að fíkn sé skortur á væntumþykju gagnvart sjálfum
sér, því að elska sjálfa/n sig, en það
eru ýmsar aðstæður sem geta orðið þess valdandi. Því þeir sem fara út í fíkn geta í flestum
tilvikum ekki tekist á við það sem takast þarf á við og geta í raun ekki, eða
gleyma, að bera virðingu fyrir sjálfum sér. En það er hægt að vinna sig út úr
fíknum eins og við komum inná síðar.
Ráðum við okkar eigin hamingju eða er hamingjan
hverful? Eins og kom fram rétt áður þá
er það enginn sem stjórnar okkar eigin hamingju nema við sjálf. Það er viðhorf
okkar til lífsins og til annarra sem stjórnar því hvort við erum hamingjusöm eða ekki. Byrjaðu núna að taka stjórn á eigin
hamingju!
Bros þitt getur haft miklu
meiri áhrif á þann einstakling sem þú brosir til heldur en þig getur nokkurn
tíma grunað!
Eitt bros getur dimmu í
dagsljós breytt.
Einar Benediktsson: Einræður Starkaðar.
Hamingjan
felst ekki í því að eignast allt, heldur í innri styrk og frið. Með öðrum orðum, í réttu hugarfari. En í því felst hamingjan!
Þegar ég var fimm ára sagði móðir mín mér alltaf að
hamingjan væri lykillinn að lífinu.
Þegar
ég síðan fór í skóla var ég spurður hvað ég vildi verða þegar ég yrði
stór.
Ég skrifaði
“hamingjusamur.”
Þeir
sögðu að ég skildi ekki verkefnið, og sagði þeim að þeir skildu ekki lífið.
John
Lennon, Bítlunum
Engin ummæli:
Skrifa ummæli