HVERNIG, HVER, HVAR, HVENÆR, HVERSVEGNA?
2. Kafli –
hvernig persóna er “ég”?
XII.Tilfinningaleikni
Um meðvitaða leiðsögn
Í bókinni Saga um tilfinningar, www.medvitaduppeldi.is, kemur
fram að meðvitað uppeldi (höfundur handbókar notar: meðvituð leiðsögn) byggir á
þeirri tilgátu að því meðvitaðri sem leiðbeinendur eru því betur séu þeir í
stakk búnir til að sinna leiðsögn sinni.
Það er að segja ef okkur tekst að dýpka okkar eigin skilning á okkur
sjálfum og tilfinningum okkar getur það skipt sköpum fyrir okkur og gert okkur
að betri leiðbeinendum.
Hvers vegna meðvituð leiðsögn?
Að vera meðvitaður um sjálfan sig
þýðir fyrst og fremst að skilja hvað býr að baki tilfinninga okkar, hræðslu og
drauma. Við komum flest úr uppeldinu
með hræðslu við ýmislegt í okkar farteski, og meðan við vitum hvorki að við
séum hrædd né hvaðan sú hræðsla kemur þá stjórnar hún meira eða minna lífi
okkar. Og oft hefur þessi hræðsla eða ótti mikil áhrif á fullorðna
leiðbeinendur.
Það er líklegt að leiðbeinendur láti það sama ganga yfir nemendur og
leiðbeinandinn ólst sjálfur upp
við. Leiðbeinandi, sem kemur úr öruggu
umhverfi er líklegri til að veita nemanda öryggi. Ef leiðbeinandi kemur úr óöruggu umhverfi,
fullu af ótta og reiði við jafnvel eitthvað sem ekki var skilningur á eða ekki
var til staðar þor til að horfast í augu við, þá eru líkur á því að
leiðbeinandinn flytji áfram þetta mynstur. Þessu er hægt að breyta með því að
vinna í sjálfum sér, horfast í augu við það hver við erum og hvaða tilfinningar
við glímum við. Þetta er mikil vinna en
einnig skemmtileg vinna, því árangurinn er svo mikill, einmitt þegar byrjað er
að vinna í hlutunum. Hvað er
skemmtilegra en að kynnast sjálfum sér betur og komast yfir höft sem hafa
kannski fylgt okkur frá blautu barnsbeini?
Það að þekkja okkar eigin tilfinningar, auðveldar okkur að skilja
tilfinningar annarra. Allar tilfinningar, eru samt réttmætar, því þær eru til staðar. Það er hins vegar hægt að vinna með slæmar
tilfinningar, og vinna sig út úr þeim, alveg eins og hægt er að vinna með og
auka góðar tilfinningar, samanber ást og kærleika. Þegar tilfinningar annarra birtast okkur,
eigum við að sýna þeim skilning; brosa á móti þegar brosað er og velta fyrir
okkur hvers vegna neikvæð tilfinning kemur upp í fari annarrar manneskju. Oft þarf mjög lítið til að hægt sé að breyta
neikvæðri tilfinningu í jákvæða tilfinningu!
Oft eru þó einnig neikvæðar tilfinningar bældar niður en þá festast þær
í undirvitundinni, þangað til þær eru losaðar upp. Þessar neikvæðu tilfinningar geta komið fram
í hegðunarvanda og margvíslegum vandamálum á öllum aldri. Sýna þarf öllum tilfinningum virðingu og
vinna síðan úr því sem vinna þarf úr til að losa út neikvæða tilfinningu.
Tilfinningar okkar!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli