miðvikudagur, 4. júní 2014

Hver og einn er einstakur


HVERNIG, HVER, HVAR, HVENÆR, HVERSVEGNA?

2. Kafli – hvernig persóna er “ég”? 

I.Hver og einn er einstakur  

v    Tilgangur:  Enginn hefur eins persónuleika, ekki frekar en enginn hefur eins fingrafar eða sjónhimnu. 
     Allir hafa sína einstöku sál.   Allir í heiminum eru því einstakir!   

Þess vegna er það að enginn sér heiminn nákvæmlega sömu augum, meðtekur allt sem sagt er á sama hátt eða vinnur úr atburðum og tilvikum á nákvæmlega sama hátt.   Allir þurfa því að virða eiginleika annarra því allir í kringum hvern og einn hafa eiginleika sem viðkomandi er kannski sjálfur ekki búinn að uppgötva.   Líttu á alla í kringum þig sem leiðbeinendur og lærðu af þeim, tileinkaðu þér það góða sem þeir hafa til að bera! 
 
        Biðja nemendur að spyrja sig: „hver er ég?”, “hvað gerir mig að einstakri manneskju?”
        Ekki keppa við aðra heldur vinna með öðrum!
        Ávallt ber að segja sannleikann – ekki ljúga, alveg sama hversu erfiður sannleikurinn getur verið.
        Muna að tala ekki illa um aðra og að það er mikilvægt að kunna að fyrirgefa öðrum, í huga sér, sem hefur gert eitthvað á manns hluta.
        Ef tilefni er til að segja “fyrirgefðu” við einhvern, þá er best að drífa í því, þá líður okkur betur.
        Góð tengsl við foreldra og/eða umsjónaraðila eru grundvöllur þess að byggja upp sterka sjálfsmynd og  sjálfsöryggi.
        Allir einstaklingar eru demantar - Það þarf bara að slípa þá misjafnlega mikið!



Engin ummæli:

Skrifa ummæli