laugardagur, 28. júní 2014

Hvað vil ég - ég get valið!



3.Kafli – Hvenær líður „mér“ best?




VIII.Hvað vil ég – ég get valið!

v  Tilgangur: Það er enginn nema nemandinn sjálfur sem ákveður hvað hann vill gera og hvað hann vill verða „þegar hann verður stór!“   Skoðun nemandans getur hinsvegar breyst mörgum sinnum á leiðinni.   Það má nefnilega skipta um skoðun! 

q  Aðferð:  Skoðum nú aðferðafræði undirvitundarfræða en hún felst í því að biðja nemanda að koma sér vel fyrir, helst með lokuð augun, og spyrja hann síðan spurninga.   Hann sér síðan svörin fyrir sér, í huga sér, og segir þau upphátt eða heldur þeim fyrir sig en það fer allt eftir málefnum og aldri nemandans.  
Biðja nemandann að spyrja sig í huganum með lokuð augun hvað hann langi til að verða þegar hann verður stór.   Spyrja síðan hversvegna hann vilji verða það sem hann tilgreinir.“
Spyrja síðan hvernig  hann ætli að fara að því að verða það sem hann vilji verða, hvenær hann ætli að byrja að undirbúa það og hvar hann sjái fyrir sér að hann sé að gera það sem hann vilji gera.
Þetta spinnst svona áfram, fleiri en ein hugmynd um framtíðina geta komið fram og þá er bara að fara einnig í þær, til dæmis með „hvers vegna“ spurningu.   Síðan væri þá hægt að fara í hvernig,  hvenær og hvar í framhaldinu.   Muna samt alltaf að langanir og þrár verða að vera raunhæfar/framkvæmanlegar!   Muna samt einnig að oft er hið ótrúlega framkvæmanlegt!

o   Eins og áður kom fram þá verður maður að þora að velja og hafna - þora að taka afstöðu á eigin forsendum – taka afstöðu út frá manni sjálfum en ekki út frá því sem öðrum finnst.   Það er allt í lagi  að fá skoðanir og álit annarra en maður verður alltaf sjálfur að taka afstöðu til málanna og standa síðan eða falla með þeirri ákvörðun.

o   Guðrún Óladóttir, reikimeistari, segir í bók sinn Við eigum valið ef við viljum, að það sé gott að hafa í huga að maður geti alltaf breytt vali sínu, en þangað til maður breyti því þá standi maður við síðasta val.

Það er mikilvægt að kunna að taka ábyrgð en ábyrgð felst í því að lofa sér í eitthvað/skuldabinda sig í eitthvað verkefni og klára það í samræmi við gefið loforð!
Munum, að öllu vali fylgir ábyrgð og agi.   Sjálfagi er það að nýta orku sína, áhuga og dugnað til þess að gera það sem maður vill gera.   Með sjálfsaga næst árangur!
 

Engin ummæli:

Skrifa ummæli