laugardagur, 23. ágúst 2014

"Talentur" - Hæfileikar okkar



7.Kafli - Hversvegna er “ég” hér á jörðinni?


IV.„Talentur“ – Hæfileikar okkar

Allir fá hæfileika í vöggugjöf.   Okkur ber skylda til að nota hæfileika okkar fyrir okkur sjálf og fyrir aðra.

Það er til gömul saga um orðið “Talentur.”   Sagan segir af efnuðum manni og þjónum hans þrem.  Þessi maður þurfti að fara erlendis og bað þjónana sína að ávaxta fé sitt á meðan.   Hann fékk hverjum og einum þeirra peningaupphæð, talentur, sem þeir áttu að ávaxta.   Að ári liðnu kom hann til baka.   Þegar hann spurði þjóna sína hvernig þeir hefðu ávaxtað féð þá sögðu tveir þeirra glaðir frá því hversu mikið upphæðirnar sem hann fékk þeim hefðu vaxið.   Þriðji þjónninn sagðist hinsvegar ekki hafa ávaxtað féð, heldur hefði hann grafið það í jörðina, en það væri líka öruggt þar og væri í alveg sama ásigkomulagi og þegar hann hefði fengið það í hendurnar.   

Orðið “Talent” eða hæfileiki er kominn úr þessari sögu.   Staða peninganna hjá þriðja þjóninum var nákvæmlega sú sama og hún hafði verið árið áður.   Það gerðist sem sagt ekkert.   Engin þróun eða breyting.   Hinir þjónarnir gerðu eitthvað með það sem þeim var fengið í  hendur, sem leiddi til ávöxtunar, þróunar.   Okkur er ætlað að rækta, auka, það sem okkur er fært en það er eina leiðin til þess að hæfileikar okkar verði meiri og við um leið árangurríkari.   Þessvegna eigum við að nota og þroska hæfileika okkar. 

Peningar eru orka segir Greg Habstritt stofnandi Authority Formula, www.authorityformula.com, en hann fjallar um ýmsar leiðir til árangurs.   Sú orka var einmitt ónotuð af einum þjóninum í sögunni og því gerðist ekkert hjá honum, enginn ávinningur varð til.   Ef við gefum af okkur til góðs fyrir aðra, segir Greg,  þá myndast orka sem gefur af sér til baka í mörgum myndum eigin velferðar.   

q  Aðferð: Biðja nemendur að koma með hugmyndir um hvernig þeir geti gefið af sér. 

q  Aðferð: Biðja nemendur um að skilgreina hæfileika sína.
 

Engin ummæli:

Skrifa ummæli