6.Kafli - Hvar er
„ég“ í tilverunni?
IX.Demanturinn
„ég“!
Alheimsorkan er orkan í heiminum eins og við höfum áður fjallað um. Alheimsorkan er það dýrmætasta í heiminum,
því annars væri ekkert líf til. Allt er
gert úr orku sem er misjafnlega samþjöppuð.
Sterkasta efnið í heiminum er demantur.
Ekkert efnasamband er sterkara en demantur. Ef sólin, sem er eins og brennandi kolamoli,
kólnaði niður, þá myndi hún breytast í risastóran demant. Sólin er tákn lífsins sem þýðir að sólin er
tákn demantsins. Þannig að hægt er að
segja að Guð sé demantur. Guð er þá
demantur sem er sterkasta og dýrmætasta efnið í heiminum. Hvert og eitt okkar er því í raun demantur,
skínandi ljósorka, því hvert og eitt
okkar er búið til í Guðs mynd.
Aðferð:
Skoða demanta með berum augum og í smásjám.
Bera demanta upp að sólargeislunum og sjá hvernig allir regnbogans litir
speglast í demantinum. Enginn annar
steinn er jafn tær og endurspeglar jafn fallega liti regnbogans, grunnliti
alheimsins, og demanturinn. Hver og
einn demantur er einstakur. Enginn
demantur er nákvæmlega eins, ekki frekar en manneskjurnar, þeir hafa sín
séreinkenni og hægt er að greina hvaða stein um er að ræða ef þeir hafa verið
skráðir eins og gert er með dýrmætustu demantana.
Aðferð:
Hver og einn nemandi gæti skrifað, teiknað eða sagt frá sínum demanti þ.e. þeim
demanti sem hann tók til skoðunar.
Hvernig upplifir nemandinn demantinn?
Aðferð:
Spyrja nemendur: „Ef þú værir demantur, hvernig mundir þú þá vilja vera?"
Engin ummæli:
Skrifa ummæli