6.Kafli – Hvar er „ég“ í
tilverunni?
II.Lífsmynstrið
Eins og áður sagði þá er allt búið til úr litlum
einingum. Líta má á hverja einingu eins
og kubb t.d. Legokubb. Kubbunum er
raðað saman og/eða þeir þróast með því að bæta utan á sig, þannig að úr verður
það sem á að verða til hverju sinni; manneskja, dýr, plöntur, fjall, húsgögn og
svo má áfram telja.
q
Aðferð: Velta fyrir sér
samsetningu hluta, úr hverju þeir eru búnir til.
Litirnir koma út frá því hvaða lit hluturinn
drekkur í sig eins og áður hefur komið fram.
Það eru síðan litirnir sem hluturinn er ekki búinn að drekka í sig sem
mynda lit hlutarins.
Dæmi: Laufblað.
Laufblað hleypir í gegnum sig öllum litum nema græna litnum. Það er þess vegna sem við sjáum grænt
laufblað. Hlutir eru málaðir og þá eru
þeir málaðir í lit sem settur er saman úr einhverjum litum og sá litur er
settur á yfirborð hlutarins. Þess vegna
sjáum við litinn sem við fyrirfram blönduðum saman.
q
Aðferð: Fara í vísindaferðir
með litaðar fólíur, til dæmis eins og settar eru fyrir framan ljóskastara til
að fá litað ljós þegar sett er upp diskótek.
Finna til gular, rauðar, grænar og bláar fólíur og prófa sig áfram með
því að leggja fólíurnar yfir hlutina og sjá hvaða lit hlutir eða plöntur fá á
sig.
Lífsmynstrið er ekki nákvæmlega eins hjá neinu okkar. Öll þurfum við að takast á við lífið. Það er bara spurning hvernig við tökumst á
við það. Best er að líta á hindranir og
erfiðleika sem þroskabraut og þakka fyrir bæði það og góðu stundirnar í lífi
okkar!
Orkulind
Hér liggja sporin
sprettur og leti,
gleði og sorgir
uppvaxtarárin.
Ljóð eftir
Vigdísi Steinþórsdóttur
Engin ummæli:
Skrifa ummæli