föstudagur, 15. ágúst 2014

Hringferli tilvistarinnar


6.Kafli - Hvar er „ég“ í tilverunni? 



III.Hringferli tilvistarinnar


v  Tilgangur: Segja nemendum að allt fer í hringi, allt myndar hringi eins og sólin sendir frá sér orkuhringi.   Ef stein er hent í vatn þá koma gárur út frá steininum, það myndast hringir sem liggja allan hringinn út frá steininum.

Allar plánetur í alheiminum snúast á sporbaugum sem eru hringir umhverfis sólir hvers sólkerfis.
Jörðin snýst  réttsælis í kringum sjálfa sig, einn hring á sólarhring. Svo snýst hún réttsælis umhverfis sólina að meðaltali á 365 dögum sem jafngildir einu ári.
Sólarhringurinn, vikan, mánuðurinn og árið fer alltaf í hringi aftur og aftur.
Vatnið stígur til himna sem uppstreymi og fellur aftur niður sem rigning, snjór eða haglél.
Sjórinn, árnar, vötnin stíga upp í formi uppstreymis og falla síðan aftur niður.
Líf kviknar, vex, dafnar og deyr.
Manneskja fæðist, vex líkamlega og andlega og deyr líkamsdauða – sálin fer til almættisins með visku jarðvistarinnar og  ferlið endurtekur sig aftur og aftur.
Dýr fæðist, dafnar, gefur af sér afkvæmi og deyr.
Planta, jurt eða tré vex, dafnar, gefur af sér fræ og deyr eða jafnvel sprettur aftur að vori eins og grasið.
Allir straumar eiga sér upphaf og endi – allt er knúið áfram af bylgjum; hljóðbylgjur, rafbylgjur og svo framvegis.
q   
Aðferð: Ræða um hringferli tilvistarinnar við nemendur og fá þá til að koma með dæmi.  Leiðbeinandi þarf ekki að vera alvitur en á heldur að vera meira eins og heimspekingur – bara ræða um hlutina út frá öllum hliðum.   Það er ekki nauðsynlegt að niðurstaða fáist í umræður af þessum toga.   Umræðan getur hinsvegar vakið áhuga nemandans á því að kynna sér betur það sem fjallað er um og hann finnur að hann getur leyft sér að velta hlutunum fyrir sér út frá öllum hliðum.
 

Engin ummæli:

Skrifa ummæli