7.Kafli
- Hversvegna er “ég” hér á jörðinni?
I.Þakklæti
og kærleikur
Þakklæti
v Tilgangur:
Kenna börnum að þakka fyrir, til dæmis, foreldra, systkini, ættingja, vini,
skólann og lífið!
q Aðferð:
Það er hægt að gera með spurningum á borð við „hverjum viltu þakka í dag/í
þetta skiptið?”, „Gerði einhver eitthvað
fyrir þig sem þér þótti vænt um?”, “Er
ekki gott að við eigum fötin okkar og matinn sem við höfum í dag?”
q
Aðferð: Kenna nemandanum að þakka fyrir allt hið hversdagslega og líka það sem
erfitt er því það að sigrast á erfiðleikum sem koma upp er leið að enn frekari
þroska.
q
Aðferð: Kenna nemandanum að
þakka fyrir allt!
q Aðferð: Það
er góðs viti að þakka fyrirfram fyrir daginn sem er að hefjast. Einnig er
ávallt gott að þakka fyrir daginn í lok dags.
Í
bókinni Allra besta gjöfin er fjallað um „Gullna listann“ en það er listi sem
hver og einn getur búið sér til með því að sjá fyrir sér á hverjum morgni
gullið spjald sem á eru ritaðir tíu hlutir sem viðkomandi er sérlega þakklátur
fyrir í lífi sínu.
Þakklætisbókin,
eftir Sigurð Víðir Ívarsson, er með fallegar daglegar setningar neðst á hverri
síðu og síðan tómar blaðsíðurnar til að skrifa inn í þakklæti sitt og þar með
minna sig á, og halda utan um, hvað maður getur þakkað fyrir!
Kærleikur
Á
íslensku eigum við orðin kærleikur og ást en í enskri tungu er í raun notað
orðið Love yfir bæði hugtökin. Kærleikur er í raun ást til alls. Kenna nemanda hvað sé
kærleikur. Með því er hægt að byggja upp kærleiksríkari einstakling
sem þá byggir upp kærleiksríkara samfélag.
“Elska skaltu náungann eins og sjálfan þig”, segir í Biblíunni. Þetta þýðir að þú átt fyrst að elska sjálfa/n
þig sem og elska og koma fram við fólkið í kringum þig eins og þú vilt að komið
sé fram við þig.
Í kærleikanum er fyrirgefningin einna stærst. Við verðum að fyrirgefa öðrum og biðjast
sjálf fyrirgefningar á gjörðum okkar.
En það er leiðin að dýpri andlegum þroska og meiri hamingju.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli