7.Kafli - Hver er tilgangurinn með veru minni hér á
jörðinni?
II.Góðsemi og velvilji
Allar manneskjur eru að grunni til góðar
manneskjur, allir fæðast „góðir“ en við höfum að miklu leyti farið í gegnum
neðangreint áður í handbókinni. Það er
síðan hvernig hverri og einni manneskju tekst að vinna úr aðstæðum og
umhverfinu á hvaða veg hver og einn einstaklingur þróast. Áföll geta leitt til biturleika, erfiðleikar
geta leitt til neikvæðni. Spurningin er
hvort litið er á mótlæti sem leið til þroska eða til að nýta við eigið
niðurrif! Þetta er val hvers og eins.
Stundum þarf stuðning til að komast í gegnum
erfiðleika en þá er það á ábyrgð hvers og eins að leita eftir því. Það er á ábyrgð hvers og eins að vinna í
sínum málum. Ef og þegar einhver biður
um hjálp þá eigum við að bregðast við þeirri hjálparbeiðni. Hvað
unga nemendur varðar þá þarf að styðja þá en kenna þeim að taka ábyrgð, kenna
þeim að takast á við aðstæður og vinna úr þeim.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli