7.Kafli - Hver er tilgangurinn með veru minni hér á
jörðinni
V.Allt fólk er samferðafólk
Enginn hefur eignarétt yfir öðrum, við erum bara
samferða á jörðinni, erum þar til að þroskast, upplifa, styðja við aðra og fá
stuðning frá öðrum á ferðalagi okkar á jörðinni. Hver og einn er einstök sál, hver og einn á
sinn tilvistarrétt. Á fullorðinsárum á
hver og einn að treysta á sjálfan sig og bera ábyrgð á sjálfum sér, hverjum og
einum eiga að veitast þau sjálfsögðu mannréttindi að fá að bera ábyrgð nema
þegar um veikindi eða fötlun er að ræða og viðkomandi þarf aðstoð og þá á hann
að fá þá aðstoð sem hann sjálfur óskar eftir.
Manneskja á ekki að lifa í gegnum aðra manneskju. Hver og einn lifir fyrir sig og á sínum
forsendum. Þess vegna er það þannig að
hamingjan getur aldrei komið nema frá eigin hjarta, það er enginn sem getur
fært öðrum hamingjuna á silfurfati, það er aldrei ein manneskja sem færir
annarri manneskju hamingjuna, þó oft sé litið svo á að nú hafi þessi eða hinn
fundið hamingjuna með því að eignast barn, eignast maka, eignast veraldlega
hluti, mennta sig, finna draumastarfið og svo má áfram telja.
Við eigum að líta á og koma fram við allar
manneskjur sem bræður okkar og systur, andlega tengdar, þó hver um sig sé samt
sjálfstæð og einstök manneskja, alveg óháð því hlutverki sem við, eða aðrar
manneskjur, gegnum í lífi okkar.
Hamingjan er innri tilfinning sem einstaklingurinn
sjálfur getur einn fundið með því að vinna í sjálfum sér og finna eigin innri
vellíðan. Með því getur
einstaklingurinn síðan séð hlutina í nýju ljósi og samglaðst öðrum, notið þess
að vera samvistum með öðrum, notið þæginda, notið starfsins eða þekkingarinnar
sem fékkst í gegnum menntun, vinnu eða lífið sjálft. Við lifum í samvistum við annað fólk í þeim
tilgangi að gefa af okkur og þiggja frá öðrum.
Við erum hér saman á jörðinni til að styðja hvert
annað og læra hvert af öðru, þess vegna erum við samferða þeim sem við erum
samferða hverju sinni.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli