7.Kafli
- Hversvegna er “ég” hér á jörðinni?
VII.Innri ró, jafnvægi og trú
Innri frið er að finna þar sem maður er – enginn þarf að
leita að innri friði annarsstaðar! Viðvarandi innri ró má líkja við alsælu – að vera alsæl/l
öllum stundum. Það er ekki hægt
að finna innri frið annarsstaðar en innra með okkur sjálfum. Í þeirri stöðu er viðvarandi ást og kærleikur til staðar
gagnvart öllum og öllu. Viðkomandi sér
aðra eins og himneskar verur, skynjar sál þeirra en veitir fatnaði og ytri útliti
þeirra ekki sérstaka athygli. Það ríkir
kyrrð í huganum sem ekkert fær raskað.
Dagleg málefni sem áður virtust flókin, leysast sjálfkrafa eða á
einfaldan hátt með aðstoð náttúrulögmála alheimsins og engin átök eiga sér
stað. Þessari innri ró geta allir
nemendur náð sem leggja sig fram um að læra aðferðafræðina sem er í raun
ofureinföld. Já, ofureinföld, eins og
allt á að vera hér á jörð. Það er í
raun einfaldleikinn sem býr til innri ró og hamingju.
Skýring: Hugleiðsla hefur sterkt forvarnargildi þar sem "alsæla" sem við þá iðkun næst er sú sem nemendur á jörðinni eru að leita að þó stundum leiti þeir að henni á vitlausum stöðum þ.e. í óheilbrigðum leiðum áfengis og vímuefna.
v
Tilgangur:
Kenna nemandanum að stjórna huga sínum , öðlast hugarró og innri frið en með
því fær hann betri líðan, skýrari einbeitingu og meiri alhliða árangur og
hamingju.
q Aðferð: Hugleiðsla.
Í byrjun skóla- eða vinnudags, eða snemma dagsins, þá er gott að fara í hugleiðslu.
Hugleiðslu er hægt að stunda ein/n og sér eða í hóp. Ef um hóp er að ræða þá biður leiðbeinandi
hópsins alla að koma sér þægilega fyrir í sitjandi stöðu, með lokuð eða opin
augun, og biður alla að hafa þögn.
Leiðbeinandinn segir að nú sé byrjað á að slaka alveg á í fótum, síðan
er farið upp eftir líkamanum og honum slakað niður lið fyrir lið og endað á
höfðinu, þar sem allir andlitsvöðvar slakna niður. Þegar hálf mínúta er liðin í þögn þá segir,
til dæmis, hver og einn við sjálfan sig skv. leiðsögn leiðbeinandans „ég er
friðsæl/l og mér líður vel, þetta verður góður dagur.“ Sumir vilja tengja sig við æðra máttarvald
með því að hugsa góðar hugsanir og jafnvel
fara með litla bæn. Síðan er
gott að hugleiða með því að tæma hugann og/eða hugsa góðar og uppbyggilegar
hugsanir í þögninni í 10 mínútur, aðeins meira eða minna, eftir aðstæðum. Mikilvægt er síðan að hætta hugleiðslunni á
réttan hátt með því að opna augun rólega.
Það er reyndar einnig hægt að hugleiða með opin augun og þá með því að
velja sér ákveðinn punkt til að horfa á á meðan að á hugleiðslutíma
stendur. Það er allt í lagi líka að
lygna augunum og opna þau síðan aftur rólega.
Gott er, í lokin, að teygja úr
sér eftir þörfum.
q Aðferð: Einnig er hægt að byrja hvern skóladag í sal
skólans eða vinnudag í mötuneytinu þar sem allir setjast niður og fara í gegnum
hugleiðsluna saman – það yrðu ennþá sterkari áhrif af slíkum fjölda saman
komnum, bæði fyrir nemendur, leiðbeinendur og samfélagið í heild.
Til
eru margar gerðir hugleiðslu sem flestar falla undir enska orðið
meditation. Ávallt er gott að hugleiða á morgnana til að stilla sig inn í daginn. Einnig
er gott að hugleiða seinnipartinn eða á kvöldin til að „loka“ deginum,
en það fer bara eftir aðstæðum.
Æskilegast er að hugleiða frá 5 mínútum upp í 20 mínútur.
Hugleiðsla
Hugleiðsla í anda austurlenskra fræða, til dæmis raja jóga hugleiðsla, felst í því að kyrra og tæma hugann - sitja í þögn án hugsunar - en hún er kennd hjá Brahma Kumaris Lótushúsi, www.lotushus.is

Centering prayer - Kristin íhugun / kyrrðarbæn
Centering prayer er ein tegund kristinnar íhugunar sem má útleggja á íslensku sem kjarnabæn, kjarnahugleiðsla eða kjarnaíhugun. Orðið centering má þýða á ýmsa vegu og sem dæmi má nefna þá getur það þýtt miðja eða kjarni. En kjarninn er miðja alls, upphaf alls. Upphaf centering prayer má rekja til Benediktarreglunnar, reglu heilags Benedikts, sem mótaði klausturhefð í Vestur-Evrópu í gegnum aldirnar. Sigurbjörg Þorgrímsdóttir sem er leiðandi í centering prayer á Íslandi útleggur centering prayer sem íhugun. Hægt væri því að útleggja centering prayer sm kjarnaíhugun. Kjarnaíhugun er tenging við Guð í formi samræðna við hann í huga sér og/eða upphátt, í formi bæna og/eða lesturs orða biblíunnar og í formi bænar hjartans þar sem einstaklingurinn tengist Guði, án orða og án þess að meðvitaðar hugsanir trufli. Hugsunum er ýtt frá eins og í hugleiðslunni hér fyrir ofan. Samkvæmt því sem Sigurbjörg kennir þá velur einstaklingurinn sér orð, fallegt orð/kristið orð, helst eins til tveggja atkvæða orð, sem hann segir í huga sér í byrjun hugleiðslu og einnig inn í hugleiðslunni ef hann finnur að hugsanir eru að taka völdin. Þetta orð gæti, til dæmis, verið orðið ást. Þannig notar sá sem íhugar kristna orðið til að ýta öðrum hugsunum frá og viðhalda tenginguni við almættið. Kjarnaíhugunin lytur að því að næra sálina og tengja einstklinginn við almættið, daglegt líf, umhverfið og fólkið sem einstaklingurinn umgengst.
Centering prayer er kennd sífellt víðar á landinu, bæði í hugleiðsluhópum og í kirkjum sem og á Kyrrðardögum í Skálholti, www.skalholt.is En samkvæmt Sigurbjörgur þá er aukning að verða á notkun þessa hugleiðsluforms á Íslandi og fleiri hugleiðsluhópar eru að myndast.
Nánari upplýsingar er að finna á vefnum www.kristinihugun.is Íslensku hugleiðsluhóparniar, Contemplative ourtreach of Iceland, sækja fyrirmynd sína til Thomas Keating sem hefur meðal annars gefið út bókina Open mind, Open heart og er einn stofnenda hugleiðslusamtaka um centering prayer, www.contemplativeoutreach.org, í Bandaríkjunum.
Innhverf íhugun
Elke Jennrich, ein leiðbeinenda hjá Íslenska íhugunarfélaginu, www.ihugun.is, kennir innhverfa íhugun sem er ákveðið form hugleiðslu, sambærilegt við áðurnefnd hugleiðslu-og íhugunarform. En þar er einnig leitast við að ná fram kyrrð hugans - sitja í þögn án þess að láta umhverfishljóð trufla sig. Yfirleitt er farið með eitt ákveðið mantra. En mantra, eða möntrur eru forn indversk orð úr sanskrit tungumálinu, hljóð, sem notuð voru og notuð eru af, til dæmis, búddatrúarfólki og hindúum og öðrum þeim sem læra innhverfa íhugun.
Indverska mantran er notuð í innhverfri íhugun á sama hátt og íslenskt kristið orð/fallegt orð í kjarnaíhugun. Orðin eru notuð á sama hátt, eða til að ýta frá hugsunum og viðhalda tengingu við almættið. Smám saman gleymist mantran og einstaklingurinn situr eftir í kyrrðinni og rónni.
Grace of god
meditation – Hugleiðsla Náðar Guðs
Grace of god meditation er meðal
annars kennd af Auði Bjarnadóttur í Jógasetrinu, www.jogasetrid.is. Hugleiðslan er hluti
Kundalini jóga. Hugleiðslan skapar
tengingu Sjálfsins og náttúruaflanna fimm; vatns, elds, lofts, himins og
jarðar. Hugleiðslan er í tveim
hlutum. Fyrri hluti fer þannig fram að lagst
er á bakið og sagt er í hljóði með lokuð augun:“Ég er náð guðs“(I´am the grace
of god). Fyrst er andað in, andanum
haldið inni og mantran(setningin) sögð 10 sinnum, síðan er andað út og mantran
sögð 10 sinnum. Þetta er endurtekið 5
sinnum. Seinni hluti hugleiðslunnar fer
þannig fram að setið er í uppréttri stöðu með augun áfram lokuð, hægri höndin
er sett í svokallað gyan Mudra stellingu þar sem hægri hendin hvílir á hægra
hné, lófinn upp á við, þumalfingur er settur ofan á nögl vísifingurs
handarinnar og myndar þannig þekkta jógastellingu handarinnar. Vinstri hendin er rétt upp þannig að lófinn
sé á hæð við öxlina eða eins og þegar verið er að sverja eið í réttarsal. Þess má geta að þegar verið er að sverja eið
þá er það gert með orðunum:“Ég lofa að segja sannleikann, ekkert nema
sannleikann, megi Guð vera með mér.“ Þannig að segja má að þessi handastaða sé
tákn sannleikans! Einnig má þess geta að
þegar eiður er svarinn þá er hægri höndin lögð á biblíuna. En svo við höldum áfram, þá snýr lófi vinstri
handar fram á við. Allir fingur er beinir en afslappaðir og vísa beint upp í
loftið. Byrjað er á að setja litla fingur í stífa stöðu, afslöppuð staða
fingursins verður sperrt. Mantran „Ég
er náð guðs“ er sögð fimm sinnum upphátt, síðan fer litli fingur aftur í
afslappaða stellingu, lóðrétta en ekki spennta, og eins er gert við næsta
fingur. Þannig eru allir puttarnir sperrtir, einn af öðrum í smá tíma og
mantran sögð. Tenging hvers fingurs við náttúruölfin hefur ákveðinn tilgang:
1.Litli fingur Merkúríus Vatn Afl samskipta, undirvitundarsamskipti við
eigið Sjálf
2. Baugfingur Sólin og Venus Eldur Líkamleg
heilsa, lífsneisti, náð og fegurð
3. Langatöng Satúrnus Loft Þolinmæði og tilfinningar til að helga sig einhverju
4. Vísifingur Júpíter Himinn Viska og útþensla, opið rými fyrir breytingar
5. Þumafingur Jörðin Jörðin Jákvæð sjálfmynd
Best er að gera hugleiðsluna með ekki fullann maga (því þá fer orkan í meltinguna), tvisvar á dag, yfir ákveðið tímabil, til dæmis 40 daga.
Kirtan Kriya
hugleiðsla: SA TA NA MA hugleiðsla
Kirtan Kriya er upprunalega komið úr
Kundalini Yoga. Aðferðin byggist
á söng og fingurstöðum. Hugleiðslan
minnkar streitu, eykur flæði í heilanum, eykur einbeitingu og skýrleika og eykur
samtengingu líkama, hugar og anda. Aðferðin hefur gefist vel hjá
Alzheimersamtökunum Alzheimer´s research & prevention foundation, www.alzheimersprevention.org, til að auka
virkni heilans meðal annars til að koma í veg fyrir minnistap og hægja á eða
koma í veg fyrir alzheimer sjúkdóminn. Einnig
er talið að æfingin almennt bæti minnið!
SA þýðir fæðing, TA þýðir lífið, NA þýðir dauðinn og MA þýðir
endurfæðing. Aðferðin er þannig að maður kemur sér vel fyrir, til dæmis, í
stól, lokar augunum og segir eftirfarandi orð SA, TA, NA og MA. Þegar orðið SA
er sagt eru þumalfingur beggja handa látnir snerta vísifingur sömu handar,
þegar orðið TA er sagt eru þumalfingur látnir snerta löngutengur, þegar NA er
sagt eru þumalfingur látnir snerta baugfingur og þegar orðið MA er sagt eru
þumalfingur látnir snerta litlufingur.
Þannig er fingrunum smellt saman með snertingu þeirra. Fyrst er þetta
gert í 2 mínútur upphátt, síðan í 2 mínútur lágt, því næst í fjórar mínútur í
hljóði, aftur í tvær mínútur lágt og í lokin í tvær mínútur upphátt. Samtals tekur hugleiðslan því 12
mínútur. Best er að iðka Kirtan Kriya
hugleiðslu á hverjum degi, helst á sama tíma dags, til að ná góðum árangri. Best er að byrja daginn á því að hugleiða og
stilla sig þannig inn í daginn.
Brahma Kumaris Lótushús, www.lotushus.is, Íslenska íhugunarfélagið, www.ihugun.is, www.kristinihugun.is, Hugleiðslu og friðarmiðstöðin, www.hugleidsla.is, Kærleikssetrið, www.kaerleikssetrid.is, Jógastöðvar m.a. www.yogashala.is, www.jogasetrid.is og margar kirkjur og trúarhópar standa fyrir gjaldfrjálsum hugleiðslustundum.
Friðarhugleiðsla Íslands, www.facebook.com/pages/Fridarhugleiðsla, stendur fyrir friðarhugleiðslu, þar sem hver og einn hugleiðir heima hjá sér eða annarsstaðar, á fyrirfram ákveðnum tímum. Mesta virkni hugleiðslu er þegar hópar hugleiða saman en það framkallar jákvæða orkustrauma. Friðarhugleiðsla Íslands vinnur út frá því að framhalla þau áhrif, hver og einn á sínum stað, en á sameiginlegum tíma.
Finna má leiðbeiningar um hugleiðsluaðferðir m.a. á vef Orkulindar, www.orkulind.is
Það má segja að allar aðferðirnar lúti að því sama, því að öðlast innri frið og tengja sig við eigið Sjálf og alheimsorkunar.
Aðferð: Kenna nemendum hugleiðslu. Við það öðlast nemandinn meiri innri ró, meiri sjálfsvirðingu, skýrari einbeitingu, öðlast meira jafnvægi og meiri vellíðan..
Hvað felst í trú?

Yfirleitt er talað um að þeir sem aðhyllist einhverja trú séu "leitandi." Þeir eru að leita. Ef við erum að leita þá hljótum við að hafa týnt einhverju, ekki satt? Jú, við erum að leita að uppruna okkar. Leita að svari við uppruna okkar, hver við erum.
Í Biblíunni segir: "Leitið og þér munuð finna, knýjið á og fyrir yður mun upplokið verða." Þannig getum við beðið um svör í bænum okkar og fundið það sem við erum að leita að! Við getum beðið um aðstoð í öllum aðstæðum í lífi okkar; beðið um lausn samskiptavandamála, lausn verkefna dagsins, lausn mikilvægs máls sem liggur á okkur. Við getum beðið um aðstoð og lausn alls sem tengist okkar lífi.
Æðra máttarvald, Guð, er allsstaðar; bæði sýnilegur og ósýnilegur, guð er
í öllu – Guð er í þér og mér. Það er
ekki hægt að teikna skýra mynd af Guði því við skynjum hann öll á mismunandi
hátt – tilgangur tilverunnar er að læra að upplifa okkur í guðsmynd en Guð
skapaði okkur í Guðsmynd það er að segja í sinni mynd. Við erum öll lifandi eftirmyndir Guðs og
getum gert það sama og guð getur gert en til þess notum við kærleikann. Við verðum hins vegar að reka okkur á,
upplifa, til að skilja kærleikann en það góða, kærleikurinn, mun smám saman ná
yfirhöndinni ef við leyfum honum það og gera okkur þannig sífellt að betri manneskjum.
Tilgangur: Að skýra út hvað sé æðra máttarvald.
Tilgangur: Að skýra út hvað sé æðra máttarvald.
q
Aðferð: Kenna nemandanum að bera virðingu fyrir
öllu. Allt á
sama tilverurétt og nemandinn. Ekkert
er yfir annað hafið. Allt er
jafnrétthátt í veröldinni eins og við höfum áður sagt. Jörðin, maðurinn og dýrin eru jafnrétthá og
því verða allir að bera virðingu fyrir öllum.
Allir geta lifað saman í sátt og samlyndi en þá þarf hver og einn að
ákveða það fyrir sjálfan sig og vinna að því.
Manneskjan má nýta jörðina sér til framfæris en ekki til að eyðileggja
hana og dýrin í skóginum eiga öll að vera vinir! Sýna, lesa, leikritið “Dýrin í Hálsaskógi”
til að koma vináttuboðskapnum á framfæri við yngri nemendur.
Hjálpa nemendum allsstaðar í samfélaginu að trúa á að það
sé eitthvað annað og meira til en þau sjálf sem þau geti leitað í, leitað til, bæði
í daglegu lífi og á gleði- og sorgarstundum.
Trúa á það góða í sjálfum sér og hverjum og einum í umhverfinu – sjá það
jákvæða í hverjum í einum.
ü Skýring:
Guð er æðra máttarvald sem skapaði og skapar allar manneskjur það er að segja
allar sálir en í hverjum mannslíkama er ein sál. Það er bara einn Guð til en
hann hefur misjöfn nöfn, tákn og túlkanir.
Eins og áður sagði þá er Guð, Guð kristinna manna, Guð hindúa, Guð búddista,
Guð gyðingdóms, Guð báhá´ía og Guð múslima svo dæmi séu tekin. Í öllum tilvikum er um sama Guð að ræða en
mennirnir hafa síðan túlkað hann og endurtúlkað hann og reynt að útskýra hann
og hans vilja á ýmsann hátt.
q
Aðferð: Kenna nemandanum það
góða sem Guð hefur fram að færa, sama hvaða trúarbrögðum nemandinn
tilheyrir. Ef góð tilfinning fylgir því
sem fjallað er um í trúnni þá er það boðskapur Guðs. Það er einfalt að boða það góða því þeir sem
miðla því til annarra og þeir sem taka við því finna góða tilfinningu þegar
þeir miðla því eða taka við því. Ef góð
tilfinning er ekki til staðar þá er það ekki frá Guði komið!
v Tilgangur: Allt sem þarf til að lifa farsælu lífi er
að trúa! Biðja, trúa og treysta!
q Aðferð: Hjálpa nemandanum að æfa sig í að biðja,
trúa og treysta. Þetta er hægt að gera
með allt í lífinu. Byrja á einhverju
einföldu eins og t.d. biðja Guð um aðstoð við eitthvað verkefni, treysta því að
verkefnið muni leysast farsællega með því að nemandinn vinni að verkefninu –
nemandinn verður að treysta því að hann fái „ósýnilega“ aðstoð við verkefnið og
að það takist vel. Það er óþarfi að
„berjast áfram“ til að gera hlutina, það er nóg að vinna að því, biðja, trúa og
treysta því að hlutirnir gerist á sinn rétta hátt og á sínum rétta tíma. Leyfa
hlutunum að flæða samferða nemandanum og þá fara hlutirnir í þann farveg sem
þeir eiga að fara í og eru bestir fyrir nemandann. Vera í nútíðinni og leyfa framtíðinni, með
okkar markmiðum, að koma átakalaust (rúlla áfram), það er lykillinn að farsælu
lífi.
q Aðferð: Finna til nokkur atriði sem nemandinn er
óöruggur með eða taka eitt fyrir í einu og vinna með það. Kenna nemandanum að öðlast traust. Þegar traustið er komið þá er hægt að fara í
stærri verkefni sbr. draumaafþreyinguna, draumaverkefnið eða
draumastarfið.
q Aðferð: Nemandi á að biðja um að fá draumaverkefnið,
gera allt sem í sínu valdi stendur til að vinna að því, trúa því að hlustað sé
á beiðnina og treysta því að svo megi verða.
Allir jarðarbúar eru í raun „kallaðir“ – kallaðir
til góðra starfa – en það heyra ekki allir.
Leggjum okkur fram við að heyra og sjá þannig að heildin, allir, geti
notið okkur góðu verka! Allt það sem
við gerum gagnvart manneskju, dýri, plöntu, jörðinni, himninum það gerum við
gagnvart öllum heiminum! Já, það virkar
þannig að með hverju góðu verki þá bætum við heiminn! Ef allir gerðu aðeins meira til að bæta heiminn
– hvernig yrði heimurinn þá? Ef hver og
einn hugsaði út frá sér, eins og Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður segir:
„Hvað get ég gert til að bæta heiminn?“
Hvað ef allir leggðu sig bara aðeins meira fram!
Almennar bænir sem gott er að geta nálgast frá degi til
dags
Ø Góði Guð hjálpaðu mér/barninu mínu/börnunum
mínum/mömmu/pabba/systkinum/fjölskyldu minni, kennaranum mínum(öðrum) að ...(texti sem tilgreinir hjálparbeiðnina)...Í
Jesús nafni, Amen
Ø Góði Guð, viltu hjálpa (tilgreina hverjum) sem á núna í erfiðleikum
og/eða þar sem hörmungar (tilgreina stað) eiga sér stað. Gefðu þeim styrk sem eru að hjálpa þessu
fólki og hjálpaðu þeim sem líður illa, að líða betur.
Ø Góði Guð, komdu inn í líf mitt og taktu stjórnina í mínu lífi, Í Jesús
nafni, Amen (þessi litla bæn biður um
aðstoð í hverju því sem verið er að takast á við og/eða er framundan á hverjum
tíma)
Orðið „Amen“
þýðir „Megi svo verða“ sem merkir að beðið sé um að bænin verði uppfyllt.

Vertu Guð
faðir
Vertu Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesús nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
Hallgrímur Pétursson
Ó, Jesús bróðir besti
Bænin er í sex versum en hér er tekið fyrir fyrsta og þekktasta versið
Ó, Jesús bróðir besti,
og barnavinur mesti,
æ, breið þú blessun þína,
á barnæskuna mína.
Texti: Páll Jónsson
Lag:
Andreas Peter Berggreen 1844
Faðir vor
Faðir vor,
þú sem ert á himnum.
Helgist
þitt nafn, tilkomi þitt ríki,
verði þinn
vilji, svo á jörðu sem á himni.
Gef oss í
dag vort daglegt brauð.
fyrirgef
oss vorar skuldir
svo sem
vér og fyrirgefum
vorum
skuldunautum.
Og eigi
leið þú oss í freistni,
heldur
frelsa oss frá illu.
Því að
þitt er ríkið,
mátturinn
og dýrðin
að eilífu,
Amen.
Biblían, Mattheusarguðspjall, 6.kapituli, vers
9-13
Guð og börnin
Sonur Guðs, Jesús Kristur, sagði; „Leyfið
börnunum að koma til mín, varnið þeim það eigi, því slíkra er guðsríki.“
Guð vill að við manneskjurnar komum til hans eins og börn. Þá er verið að tala um að hver og einn nálgist Guð út frá sannleika og hreinleika. Börn eru í eðli sínu saklaus, segja það sem þau skynja og vilja og segja sannleikann. Það er þannig sem Guð vill að við séum; sönn í því sem við segjum og gerum og með hreint hjarta, eins og barn. Börn koma alltaf til dyranna eins og þau eru klædd - þau eru "barnaleg."

Þannig eigum við öll alltaf að vera, en við eigum
það til að gleyma okkur og fara frá þessum eiginleikum okkar. Þegar það hefur gerst þá er eina leiðin bara
að fara aftur til baka og finna þessa
eiginleika okkar. Við erum í raun öll
börn, alveg sama á hvaða aldri við erum. Þegar við erum fullorðin þá erum við
fullorðin börn og þegar við eldumst þá verðum við eldri börn!
Reynum öll að verða svolítið „barnalegri!“
Sunnudagaskólann, stund sem haldin er fyrir börn
í kirkjum landsins á sunnudagsmorgnum, er einnig að finna á netinu, á
vefslóðinni www.barnatru.is og á geisladiskinum Daginn í dag, sunnudagaskólinn á dvd sem hægt er að
nálgast, áfram fleiru tengdu kristinni trú, í Kirkjuhúsinu, Laugavegi 31 í
Reykjavík.
Samræður við Guð
Okkur er öllum eiginlegt að geta talað við Guð,
hvar sem er og hvenær sem er. Við
einfaldlega tölum við hann í huga okkar eða upphátt, ræðum við hann um það sem
okkur liggur á hjarta eða um það sem við viljum biðja hann að styðja okkur við
að gera, hvort sem það er eitthvað verkefni eða flókin mannleg samskipti. Hann svarar alltaf beiðni okkar um aðstoð og
leiðsögn, ef beiðnin er einlæg og réttmæt.
Guð vill að við elskum hann jafnmikið og hann
elskar okkur! Getum við ekki sýnt honum
ást þó hann sé okkur ekki sýnilegur í skilningi sýnileikans? Ef við finnum fyrir honum, skynjum að hann
svarar bænum okkar, er það þá ekki nógur sannleikur fyrir okkur!? Guð vill eiga hlutdeild í hjarta okkur –
getum við veitt honum það fyrir allt sem hann hefur fyrir okkur gert!?
Í Biblíunni
segir:“ Sá sem trúir á mig(Guð/Jesús Krist) mun aldrei að eilífu deyja.“
VIII.Hvert förum við þegar við deyjum?
Við höfum áður farið yfir flest það sem kemur
fram í þessum kafla en þetta er líka svolítið stór spurning!
ü Skýring: Börnum er allt of oft kennt að dauðinn sé skelfilegur. Hversvegna ætti hann að vera það? Jú, vegna þess að það er missir fyrir þá sem
eftir lifa. En er það þá ekki sjálfselska
að vilja ekki sjá eftir öðrum? Dauðinn
er eðlilegur hluti tilvistarinnar! Ekki festast í
sorg til lengri tíma heldur viðhalda jákvæðum fallegum minningum og halda áfram
að lifa lífinu. Þessari samfylgd í þessu lífi er lokið en það er aldrei að vita
hvenær maður “hittir” anda sálar látins vinar eða ættinga í nýjum líkama í
þessu eða öðru lífi. Dauðinn er partur af lífinu – andi sálar lifir óendanlega
en líkami okkar ekki því þarf andinn á mörgum „sálum“ í mörgun líkömum að halda
áður en hann kemst á æðsta tilverustig sitt.
Við getum ekki öðlast alla þá þekkingu og reynslu sem við þurfum á að halda
í einu jarðlífi því þarf andinn, með „sálinni“, að fara margar ferðir til jarðar, í jarðneskt
líf, til að öðlast eilífa visku.
Orð Guðs segir: „af moldu ertu kominn og að moldu skaltu aftur
verða.“ Þessi orð eru sögð við allar
jarðarfarir en þannig virkar þetta með líkamanann. Líkami getur eyðilagðs en sálinni er ekki
hægt að eyða. Sálin
fer sína leið, upp í ljósið, til almættisins.
Eftir andlát sitt birtist Jesús Kristur sem andi
í mannsmynd, þeirri mynd sem hann hafði verið í á jörðinni. Þannig birtist sjálfur Jesús Kristur lærisveinum
sínum, og fleirum sem komu að tómri gröf hans, þegar þeir vitjuðu hans eftir
krossfestingu hans. Hann hafði risið upp
frá dauðum á þriðja degi, Páskadegi, eftir að hafa verið krossfestur á
föstudegi, sem almennt er kallaður föstudagurinn langi vegna krossfestingar
hans.
q Aðferð:
Skýra út fyrir nemandanum að þegar líkaminn er hættur að virka þá verður hann
aftur að moldu.
q Aðferð:
Fá fram umræður hjá nemendum um sálina og hvert hún fari.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli