mánudagur, 1. september 2014

Gildin



Hvernig “kerfi” get “ég” notað til að virka sem best í tilverunni?
8.Kafli –  Þekkt viðmiðunar “kerfi” 


I.Gildin

Gildin í lífinu hjálpa hverjum og einum við að hafa viðmið til að fara sem best í gegnum lífið.    

q  Aðferð: Skrifa niður gildin sín og síðan ef á þarf að halda þá kíkja á gildin áður en ákvörðun er tekin um ýmislegt.   Skoða sem sagt hvort það sem býðst að gera, framkvæma, samræmist gildum manns og taka afstöðu til samræmis við það. 

Gildin í kringum mann
Hvernig getum við unnið með gildi?   Fjölskyldan, skólahópurinn eða vinnuhópurinn getur sest niður saman og hver og einn skrifar niður á litla miða sín gildi.   Hægt er að taka fyrir eitt gildi í einu.  Síðan les hver og einn upp það sem hann skrifaði, eitt gildi í einu, þetta gengur hring eftir hring þangað til búið er að lesa upp alla miðana.   Hægt er að taka þetta saman og búa til sína “heiðarleika” setningu og svo má áfram telja.  Þannig verða til „Gildi fjölskyldunnar, skólahópsins eða vinnuhópsins “  sem síðan væri hægt að setja upp á blað, prenta út og setja upp á vegg eða bara á ísskápinn.

Hér fyrir neðan sjáum við 10 efstu gildi, efst það stigahæsta, Þjóðfundarins í Laugardalshöll, www.thjodfundur2009.is,  sem haldinn var í nóvember 2009 í Laugardalshöllinni í Reykjavík.             

  1. Heiðarleiki
  2. Virðing
  3. Réttlæti
  4. Jafnrétti
  5. Frelsi
  6. Kærleikur
  7. Ábyrgð
  8. Fjölskyldan
  9. Lýðræði
  10. Jöfnuður

Gildi Þjóðfundar um menntamál

Gleði – virðing – sköpun
eru gildin þrjú sem komu fram sem lykilgildi á þjóðfundinum  um menntamál, www.menntafundur.ning.com, sem haldinn var í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, við Stakkahlíð í Reykjavík, í febrúar 2010.
Ef til staðar er gleði, virðing fyrir sjálfum sér og öðrum sem og farvegur til sköpunar þá gengur lífið mikið betur fyrir sig!
Þeir sem stóðu að Þjóðfundinum 2009 tengdu 12 stigahæstu gildin við 12 mánuði ársins til að ýta undir notkun gildanna í samfélaginu.   Gildin voru síðan svo skemmtilega skilgreind á vef Þjóðkirkjunnar, www.tru.is, en þær skilgreiningar fara hér á eftir.   Gildunum er, eins og áður sagði, raðað niður á mánuði ársins en þannig er, til dæmis, hægt að leggja áherslu á eitt gildi í hverjum mánuði.

Heiðarleiki – gildi janúarmánaðar

Hvað þýðir orðið heiðarleiki?
Veist þú það?
Við erum heiðarleg þegar við segjum satt og plötum ekki.
Við erum heiðarleg þegar við biðjum um leyfi áður en við tökum eitthvað.
Við erum heiðarleg þegar við finnum eitthvað og skilum því til rétta eigandans.
Við erum heiðarleg þegar við viðurkennum mistök okkar.
Við erum heiðarleg þegar við stöndum við loforð okkar.

Virðing – gildi febrúarmánuðar

Við berum virðingu fyrir sjálfum okkur,  til dæmis þegar við hugsum vel um líkamann okkar, þegar við borðum hollan mat, þvoum okkur, burstum tennurnar, hreyfum okkur og klæðum okkur eftir veðri.
Við berum virðingu fyrir okkur sjálfum til dæmis þegar við hegðum okkur vel,  þegar við hlustum á eitthvað fallegt, lesum eitthvað fallegt og/eða horfum á eitthvað sem er gott. Við berum líka virðingu fyrir okkur, þegar við hugsum fallega til okkar sjálfra. Við berum virðingu fyrir okkur sjálfum þegar við erum heiðarleg og stöndum við orð okkar.
Við berum virðingu fyrir öðrum þegar við erum kurteis. Kurteisi kostar ekkert.
Við berum virðingu fyrir öðrum þegar við tölum fallega um aðra og þegar við tölum fallega við aðra.
Við berum virðingu fyrir öðrum þegar við leyfum þeim að vera með okkur í leik.

Réttlæti – gildi marsmánaðar

Hvað er réttlæti?
Við erum réttlát þegar við skiljum engan útundan.
Við erum réttlát þegar við skiptum jafnt á milli allra.
Við erum réttlát þegar við gerum ekki upp á milli fólks.
Við erum réttlát þegar við erum heiðarleg og berum virðingu fyrir sjálfum okkur og öðrum.

Jafnrétti – gildi aprílmánaðar

Hvað er jafnrétti?
Jafnrétti er það þegar allir eiga jafnan rétt.
Allir eru jafnmikilvægir og jafnmerkilegir, hvort sem þeir eru íslenskir eða útlenskir, stelpur eða strákar, hvernig sem hörundslitur þeirra er, hvar sem þér búa og hvernig svo sem þeir lifa lífinu sínu.
Við viljum öll búa við öryggi og frið.
Við veitum öðrum jafnan rétt á við okkur sjálf þegar við erum heiðarleg, sýnum öðrum virðingu og erum réttlát.

Frelsi – gildi maímánaðar

Hvað er frelsi?
Við höfum frelsi til þess að hugsa það sem við viljum hugsa, segja það sem við viljum segja, gera það sem við viljum gera.
En frelsi okkar afmarkast alltaf af heiðarleika, réttlæti, virðingu fyrir sjálfum okkur og öðrum.

Kærleikur – gildi júnímánaðar

Kærleikur er það sama og að elska aðra - eða láta sér þykja vænt um aðra.  Hvernig sýnum við öðru fólki kærleika?  Við sýnum öðru fólki kærleika með því að vera heiðarleg við það.  Sýna því virðingu.  Vera réttlát við það og leyfa því að njóta jafnréttis og gefa því frelsi til að njóta lífsins.  Við sýnum sjálfum okkur kærleika með því að vera heiðarleg gagnvart sjálfum okkur, sýna sjálfum okkur virðingu, vera réttlát gagnvart sjálfum okkur, leyfa okkur að njóta jafnréttis og gefa okkur frelsi til að njóta lífsins.

·         Kærleikurinn er langlyndur (þolinmóður)
·         Kærleikurinn er góðviljaður
·         Kærleikurinn öfundar ekki
·         Kærleikurinn er ekki raupsamur (talar ekki á óábyrgan hátt)
·         Kærleikurinn hreykir sér ekki (montar sig ekki)
·         Kærleikurinn hegðar sér ekki ósæmilega
·         Kærleikurinn leitar ekki síns eigin (að geta glaðst með öðrum, unnt öðrum þess að blómstra og tekið sjálf gagnrýni.  Þannig getum við öll lifað og nærst í virðingu, friði og sannleika hvert með öðru)
·         Kærleikurinn reiðist ekki, er ekki langrækinn (fljótur að fyrirgefa)
·         Kærleikurinn gleðst ekki yfir óréttvísinni (óréttlæti), en samgleðst sannleikanum
·         Kærleikurinn breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt… (sem þýðir að kærleikurinn er eða kallar fram það besta í hverjum einstaklingi)

Ábyrgð – gildi júlímánaðar

Við berum ábyrgð.
Hvað ætli það þýði?
Ábyrgð er næstum því það sama og að passa upp á eitthvað. Þegar við eigum að passa upp á eitthvað berum við ábyrgð á því.
Börn bera ekki eins mikla ábyrgð og fullorðið fólk. Fullorðna fólkið ber ábyrgð á börnunum. Fullorðna fólkið ber ábyrgð á því að börnin fái að borða, séu hrein, læri heima, mæti í skólann og læri að haga sér vel.
Börnin bera ábyrgð á því hvernig þau haga sér og hvernig þau fara með dótið sitt. Hvernig þau koma fram við aðra.
Við berum í rauninni vissa ábyrgð á öllu fólki. Það er á okkar ábyrgð að vera heiðarleg, bera virðingu fyrir sjálfum okkur og öðrum, vera réttlát, gæta þess að allir hafi jafnan rétt, til dæmis með því að skilja engan útundan. Við berum líka ábyrgð á því að aðrir geti notið frelsis og leikið sér eða gert það sem þá langar til. Okkar ábyrgð liggur líka í því að sýna öðrum væntumþykju.

Fjölskyldan – gildi ágústmánaðar 

Fjölskyldan er það dýrmætasta sem við eigum.
Fjölskyldan er dýrmætari en allir peningar, allt gull og allir gimsteinar í heiminum.
Þess vegna eigum við að muna eftir því að eyða tíma með fjölskyldunni.
Við eigum góðar stundir með fjölskyldunni þegar allir eru sáttir og allir hjálpast að.
Hvernig geta börnin hjálpað til í fjölskyldunni?

Lýðræði – gildi septembermánaðar

Hvað er lýðræði?
Lýðræði er það þegar við öll fáum að ráða saman.
Það er ekki réttlátt að einhver einn ráði öllu. Þess vegna er svo mikilvægt að allir hafi frelsi til að segja hvað þeim finnst og hvað þeir vilja.
Börn geta sýnt lýðræði þegar þau eru að leika  hvort við annað. Í lýðræði getur enginn sagt: Pant ráða öllu! Við verðum að virða jafnréttið og leyfa öllum að koma sér saman um hlutina.

Jöfnuður – gildi októbermánaðar 

Við eigum öll skilið að hafa það jafngott.  Þannig er réttlætið.
Allir eiga til dæmis að hafa nóg að borða.
Ef einhver á ekki nóg að borða, þá verða hinir að gefa öðrum með sér.
Lífið á jörðinni væri mikið betra ef allir myndu passa upp á jöfnuðinn.
Þeir sem eiga nóg eiga að gefa öðrum með sér.

Sjálfbærni – gildi nóvembermánaðar

Hvað í veröldinni er sjálfbærni?
Sjálfbærni er á vissan hátt það að geta bjargað sér sjálfur.
Við þurfum að fara vel með landið okkar og sjóinn í kringum landið  því landið okkar  og sjórinn gefa okkur nægan mat.
Börn geta farið vel með landið til dæmis með því að ganga vel um og henda ekki rusli út um allt.
Það eru margar leiðir til sem börn geta farið. Rusl er óvinur náttúrunnar. Þess vegna er svo sniðugt að flokka ruslið niður. Sumt rusl eyðist í náttúrunni án þess að gera henni mein en annað rusl mengar og skemmir náttúruna.
Sumt rusl er hægt að fara með í endurvinnsluna. Í endurvinnslunni er ruslinu breytt í nytsamlega hluti.
Höldum Íslandi hreinu og fallegu og þá er auðveldara fyrir Ísland að útvega okkur nægan mat svo enginn þurfi að vera svangur.

Traust – gildi desembermánaðar

Það er mikilvægt að geta treyst öðrum.
En það er líka mikilvægt að aðrir geti treyst okkur.
Ef við erum heiðarleg, berum virðingu fyrir sjálfum okkur og öðrum, leitum réttlætis og jafnréttis, virðum frelsi sjálfra okkar og annarra, sýnum öðrum kærleika og erum dugleg að axla ábyrgð, sinnum fjölskyldunni vel og gætum lýðræðis og jafnaðar, þá búum við í farsælu þjóðfélagi.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli