9.Kafli - Sjálfstyrkingar“kerfi“
III.Val – hvað vil ég – það er mitt val!
Hér á eftir koma nokkrar áhrifaríkar spurningar
sem hjálpa til við að staðsetja okkur, hvar við erum stödd, hvernig við greinum
og nýtum dýrmætustu eiginleikana og til að átta okkur á því hvert við viljum
stefna:
o Hvað er það sem veitir mér
mesta gleði?
o
Ást er hægt að gefa til alls þess sem er
lifandi. Hvernig meðtek ég ást og
hvernig gef ég ást?
o
Hvernig lýsi ég kærleikanum? Hvernig birtist mér kærleikur?
o
Hvenær er ég mest í nú-inu? Við hvaða aðstæður er ég ánægð/ur í
augnablikinu?
o
Hvað er ég að gera í dag sem ég ert
ánægð/ur með að vera að gera?
o
Er eitthvað sem mér finnst ég eiga ógert
en hef ekki byrjað að vinna í?
o
Er eitthvað sem mér finnst ég eiga að
gera betur en ég er að gera í dag?
o
Er eitthvað sem mér finnst ég eiga að
fjarlægja úr lífi mínu?
o
Hvar vil ég vera eftir 1 ár – hvernig sé
ég líf mitt, mig sjálfa/nn, starf mitt eftir 1ár?
o
Hvar vil ég vera eftir 3 ár – hvernig sé
ég líf mitt, mig sjálfa/nn, starf mitt eftir 3 ár?
o
Hvar vil ég vera eftir 5 ár – hvernig sé
ég líf mitt, mig sjálfa/nn, starf mitt eftir 5 ár?
q
Aðferð: Þessar spurningar er hægt að aðlaga
eftir aldri nemenda og best er að fá skrifleg svör við þeim, þó einnig sé hægt
að nota þær í samræðum.
v Tilgangur: Það er enginn nema nemandinn sem ákveður hvað
hann vill gera og hvað hann vill verða þegar hann “verður stór”! Skoðun hans getur breyst mörgum sinnum á
lífsleiðinni. Eins og við höfum áður
komið inn á þá má skipta um skoðun!
q Aðferð: Spyrja spurninga, biðja nemandann að sitja með
lokuð augun og sjá fyrir sér svörin og segja þau upphátt eða halda þeim fyrir
sig, fer eftir málefnum og aldri nemandans.
Biðja
nemandann að spyrja sig í huganum með lokuð augun hvað hann langi
til að verða þegar hann verður stór.
Spyrja síðan hversvegna hann vilji verða það sem hann tilgreinir.
Spyrja
hann síðan hvernig hann ætli að
fara að því að verða það sem hann vilji verða,
hvenær hann ætli að byrja að undirbúa það og hvar hann
sjái fyrir sér að hann sé að gera það sem hann vilji gera.
Þetta
spinnst svona áfram, fleiri en ein hugmynd um framtíðina geta komið fram og þá
er bara að fara einnig í þær til dæmis með hversvegna spurningu: “hvers vegna
viltu fara þá leið?” Síðan væri þá hægt
að fara í hvernig, hvenær og hvar í framhaldinu.
Muna samt alltaf að langanir og þrár verða að vera
raunhæfar/framkvæmanlegar. Það er
mikilvægt að kunna að taka ábyrgð á því sem maður tekur sér fyrir hendur en
ábyrgð felst í því að lofa sér í eitthvað/skuldabinda sig í eitthvert verkefni
og ljúka því í samræmi við gefið loforð!
Gott er að muna að maður getur alltaf breytt vali sínu en
þangað til stendur maður við síðasta val.
Stundum er talað um dómgreindarskort en þá er verið að
tala um að einhvern skorti dómgreind. Enginn
vill að sagt sé við sig eða um sig að hann eða hún sé með dómgreindarskort en
hver á að dæma mann, nema maður sjálfur!
Öllum er nefnilega eiginlegt að treysta og trúa á eigin dómgreind. Enginn getur vitað hvernig við viljum hafa
hlutina og hvernig við viljum gera hlutina og hvaða leiðir við viljum fara í
lífinu, nema við sjálf! Munum það svo
lengi sem við lifum! Við ein erum við
stjórnvölinn!
Á Bjargi
:,: Á
bjargi byggði hygginn maður hús, :,:
Og þá
kom steypiregn.
:,: Og
þá kom steypiregn og vatnið óx og óx, :,:
Og
húsið á bjargi stóð fast.
:,: Á
sandi byggði heimskur maður hús, :,:
Og þá
kom steypiregn.
:,: Og
þá kom steypiregn og vatnið óx og óx, :,:
Og
húsið á sandi, það féll.
Texti:
Matt. 7.24-27. Lag:
Höfundur ókunnugur
Þú ræður hvort
þú byggir þína framtíð á bjargi eða á sandi – hvað ætlar þú að velja? Þitt er valið!
q
Aðferð: Spyrja nemendur hvernig
þeir ætli að byggja upp sitt líf, á sandi eða á bjargi!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli