Hvernig “kerfi” get “ég” notað til að virka sem best
í tilverunni?
8.Kafli – Þekkt viðmiðunar “kerfi”
V.Hugtök
Auðmýkt: Aðrir eru jafnir mér, hvorki meiri né minni
en ég.
Bjargræði: Viðurværi / framfæri.
Sannleikur: Sannleikur er ást. Með því að sýna, gera og segja sannleikann
þá sýnum við ást, til okkar sjálfra og allra annarra og alls annars í
tilverunni. Þess vegna er sannleikurinn
lífið því það er ekkert líf án ástar.
Samhygð: Samhygð snýst ekki um meðaumkun eða það að
okkur finnist að aðrir standi ekki jafnfætis okkur. Til að geta sýnt samhygð þá verðum við að
líta á alla sem jafna. Samhygð er að
aðstoða aðra en án vorkunnar. Samhygð
er að aðstoða aðra sem jafningja manns.
Umburðarlyndi:
Að sætta sig við að allt er ekki eins og maður sjálfur vill hafa það.
Vanmetakennd: Er það að þora ekki að taka afstöðu og þannig
hvorki velja eða hafna.
Víðsýni: Stækka sjóndeildarhringinn, vera án fordóma
og vera opinn fyrir nýjum hugmyndum.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli