sunnudagur, 7. september 2014

Dyggðirnar sjö



Hvernig “kerfi” get “ég” notað til að virka sem best í tilverunni? 

8.Kafli –  Þekkt viðmiðunar “kerfi” 


III.Dyggðirnar sjö

1.       Viska
2.       Hófstilling
3.       Hreysti (hugrekki)
4.       Réttlæti
5.       Trú
6.       Von
7.       Kærleikur

Kærleikurinn er mikilvægastur dyggðanna sjö því hann er grunnurinn að því sem við erum.   Að gefa af sér til annarra er það mikilvægasta sem hver og einn einstaklingur getur gert.   Auðvitað þarf hver og einn ekki síður að hugsa um sjálfan sig og að sjá sér farborða og rækta sjálfan sig til að getað hjálpað öðrum.  Áður voru dyggðir þær fjóru fyrstu en síðan bættust við kristnu dyggðirnar; trú, von og kærleikur.

Til er saga sem segir að hópur fólks hafi staðið í kringum tvo gríðarlega stóra matarpotta.   Allir í kringum hvorn pott fyrir sig höfðu til umráða stóra skeið sem ætluð var til að ná matnum úr pottunum.  Einstaklingarnir umhverfis annan pottinn reyndu að mata sjálfa sig en það tókst ekki þar sem skaftið var svo langt að þeir náðu ekki að koma skeiðinni upp að munninum.   Í kringum hinn pottinn áttuðu einstaklingarnir sig á því að betra var að taka úr pottinum með löngu skeiðinni og rétta til manneskjunnar beint á móti – þannig mötuðu allir hvern annan og allir fengu nægju sína.  Þessi saga segir okkur að við verðum að hugsa um aðra til að nærast í öllum skilningi þess orðs!
Þórunn Valdimarsdóttir tók saman dyggðirnar sjö að fornu og nýju í tilraun sinni til að skýra úr þróun dyggðanna.  Við skulum líta á samantekt hennar og skilgreiningu:  Dyggðir eru bæði í heimspekilegum og trúarlegum skilningi eiginleikar sem menn hafa trúað að hægt væri að tileinka sér og jafnvel rækta og efla þar með vellíðunarþátt lífsins á varanlegan hátt. Þetta á jafnt við um fornu dyggðirnar sjö: visku, hófstillingu, hugrekki, réttlæti, trú, von og kærleika og nútímadyggðirnar sjö: hreinskilni, dugnað, heilsu, heiðarleika, jákvæðni, traust, vináttu/fjölskyldu.   Ástundun samtímadyggða kemur í veg fyrir vandræði á vegi lífsins og eykur vellíðan.   Tvær nýju dyggðanna eru trúarlegar eða tilfinningalegar, jákvæðnin og traustið, hinar tengjast atferli.   Atferlisdyggðirnar mynda öruggan ramma um lífið, veita heilbrigð skilyrði, koma í veg fyrir árekstra og veita því vellíðan, því er ekki hægt að neita þegar venjulegt samtímafólk á í hlut.   Það er jú þessvegna sem þetta eru dyggðir!  

q  Aðferð: Biðja nemendur að koma með dæmi um allar dyggðirnar, hverja fyrir sig, og hvernig hægt er að vinna með þær og nýta þær í daglegu lífi.   Leikskólarnir Krógaból, Sunnuból og Síðusel á Akureyri gerðu lífsleiknikennsluefni um dyggðirnar.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli