þriðjudagur, 2. september 2014

12 spora kerfið



Hvernig “kerfi” get “ég” notað til að virka sem best í tilverunni?

8.Kafli –  Þekkt viðmiðunar “kerfi” 


II.12 spora kerfið

v  Skýring: 12 spora kerfið var upphaflega fundið upp til að hjálpa þeim sem áttu við áfengisvandamál að stríða.   Í dag eru slík 12 spora kerfi notuð víðsvegar til að aðstoða við ýmislegt sem manneskjan er að takast á við.  12 spora kerfið er notað af fjölmörgum samtökum bæði hérlendis og erlendis.   Það er gott að hafa sýn inn í 12 spora kerfið því það er hægt að útfæra það á fjöldann allan af aðstæðum til að takast á við, til dæmis fíknir.   Fíknir geta verið tölvufíkn, spilafíkn, átfíkn, vímuefnafíkn, áfengisfíkn og fleiri tegundir fíkna. Hver og einn sem vinna vill með 12 spora kerfið fer í gegnum eftirfarandi:

Sporin 12
  1. Við viðurkenndum vanmátt okkar gagnvart...(skilgreina það sem takast á á við)... og að við gætum ekki lengur stjórnað eigin lífi.
  2. Við fórum að trúa að máttur okkur æðri gæti gert okkur andlega heilbrigð að nýju.
  3. Við tókum þá ákvörðun að fela líf okkar og vilja í umsjá Guðs, samkvæmt skilningi okkar á honum.
  4. Við gerðum rækileg og óttalaus siðferðileg reikningsskil í lífi okkar.
  5. Við játuðum misgjörðir okkar fyrir Guði, sjálfum okkur og annarri manneskju og nákvæmlega hvað í þeim fólst.
  6. Við vorum þess albúin að láta Guð fjarlægja alla skapgerðarbrestina.
  7. Við báðum Guð í auðmýkt að losa okkur við brestina.
  8. Við skráðum misgjörðir okkar gagnvart náunganum og urðum fús til að bæta fyrir þær.
  9. Við bættum fyrir brot okkar milliliðalaust svo framarlega sem það særði engan.
  10. Við iðkuðum stöðuga sjálfsrannsókn og þegar út af bar viðurkenndum við yfirsjónir okkar umsvifalaust.
  11. Við leituðumst við með bæn og hugleiðslu að styrkja vitundarsamband okkar við Guð, samkvæmt skilningi okkar á honum, og báðum um það eitt að vita vilja hans og hafa mátt til að framkvæma hann.
  12. Við urðum fyrir andlegri vakningu er við stigum þessi spor og reyndum því að flytja öðrum ...(tilgreina þann hóp sem er að fást við þann vanda)... þennan boðskap og fylgja þessum meginreglum í lífi okkar og starfi (www.wikipedia.com).
q  Aðferð: Hægt er að fara í gegnum ofangreind 12 spor með nemanda sem álitið er að hafi við einhver vandamál fíknar að stríða og/eða vilji koma sér út úr erfiðum aðstæðum/fjötrum til betra lífs. 

Æðruleysisbænin


„Guð, gefðu mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt,

kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli.“   

William James (höfundur 12 spora kerfisins)

Engin ummæli:

Skrifa ummæli