sunnudagur, 21. september 2014

SVÓT - Styrkleikar, Veikleikar, Ógnanir og Tækifæri



9.Kafli – Sjálfstyrkingar"kerfi"


II.SVÓT – Styrkleikar, Veikleikar, Ógnanir og Tækifæri

v  Tilgangur: Finna veikleika og styrkleika nemandans.

Styrkleikar
Veikleikar
Ógnanir (hindranir)
Tækifæri

Einfalda SVÓT greiningu er hægt að gera með því að skipta A4 blaði í 4 hluta og skrifa efst í hvern hluta eitt af ofangreindum orðum.   Síðan er einfaldlega byrjað að tína til, til dæmis það sem skemmtilegt er að gera – það sem leikur í höndum nemandans (styrkleikar) og það sem leiðinlegt er að gera – það sem nemandinn á erfitt með að gera (oft veikleikar).   Síðan er hægt að velta fyrir sér hvaða ógnanir (hindranir) gætu staðið í veginum og hvaða tækifæri geta falist í lífinu.
q   
Aðgerð: Flestir hafa einn aðal veikleika og flestir hafa einn aðal styrkleika.  Hægt er að nota SVÓT greininguna til að finna þessa lykilveikleika og lykilstyrkleika.  Sniðugt er þegar búið er að skrifa inn í alla fjóra dálkana að raða innan þeirra.  Þannig verður mesti styrkleikinn efstur í styrkleikaflokknum og mesti veikleikinn efstur í veikleikadálkinum.   Athugum samt að við ætlum ekki að fara að leggja áherslu á að velta okkur upp úr veikleikunum en ef þeir eru mjög hindrandi þá er gott að tilgreina þá til þess þá að vinna úr þeim! 

Þegar SVÓT greiningu er lokið, þá er hægt að nýta hana til að vinna að því að ná sínum markmiðum.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli