mánudagur, 15. september 2014

Áhugasviðs-og hæfnisgreining



9.Kafli – Sjálfstyrkingar“kerfi“  


I.Áhugasviðs-og hæfnisgreining

Hvar liggur áhugi nemandans?
v  Tilgangur: Finna út hvað vekur áhuga nemandans?

q  Aðferð: Áhugi nemandans getur til dæmis verið mikill á hreyfingu en lítill á bóklegu sviði.   Þá þarf að leyfa nemandanum að eyða meiri tíma í hreyfingu en minni tíma í bóklegt nám.

  • Hvað finnst nemandanum skemmtilegast? 
o   Hvað finnst nemandanum leiðinlegast?

o   Í hverju er nemandinn bestur?
o   Í hverju er nemandinn verstur?

o   Hvaða þrjá helstu hæfileika hefur nemandinn?
o   Hvaða helstu þættir eru að hefta nemandann?

o   Spyrja nemandann:“Finnst þér gaman að (tilgreina málefnið)“ , „Heldurðu að þú hafir hæfileika til þess að (tilgreina málefnið).“

Raða  hæfnisþáttum síðan upp; efst mesta hæfnin og neðst mesti veikleikinn.

Fara yfir blaðið með nemandanum og skoða hvort eitthvað stangast á - veikleiki og hæfileiki - og skoða þá hvernig er hægt að gera meira úr hæfileikanum.   Skoða síðan hvort það sé allt í lagi að hinir veikleikarnir séu til staðar eða hvort og hvernig mætti byggja þá upp.   Leggja ber samt mesta áherslu á að byggja upp hæfileikana og velta fyrir sér aðferðum til að ná árangri á því sviði sem nemandinn er sterkastur á.   Ekki er ólíklegt að samsvörun sé milli þess sem nemandanum finnst skemmtilegast og því sem nemandinn er bestur í og þá einnig á öndverðum meiði að samsvörun sé  í því hvað nemandanum finnst leiðinlegast og því sem nemandinn er verstur í.

Hægt er að nota flóknar áhugasviðs- og hæfnisgreiningar en einnig er hægt að nota til dæmis eftirfarandi spurningar

Hvenær líður þér best?    Þegar þú ert að gera hvað?
Hvað veitir þér mesta ánægju?   Heldurðu að þú getir ræktað það með því að sinna því?
Hvar heldurðu að þú myndir ná mestum árangri?   Langar þig til þess að þjálfa þig upp í því?
Í hvernig námi / vinnu heldurðu að aðrir sjái þig fyrir sér?     Afhverju heldurðu það?
Hvar heldurðu að þú gætir öðlast þá þekkingu og reynslu sem þú helst sækist eftir?
Hvað þarftu að gera til að sá draumur geti orðið að veruleika?   Er eitthvað sem stendur í vegi fyrir því að þú getir farið þá leið?    Er eitthvað fleira sem þér finnst þurfa að tala um í tengslum við það sem þig langar til að leggja fyrir þig?

Þannig er hægt að fá mjög greinargóða yfirsýn yfir líðan og áhuga nemandans og styðja hann síðan í því sem taka þarf á eða vinna þarf í.

Ásta Kristrún Ragnarsdóttir námsráðgjafi hefur hannað áhugasviðsgreininguna NEMAcode, www.nemaforum.web.is, sem birtir skýra sýn á það hvaða námsleiðir og starfssvið eru vænleg fyrir hvern og einn.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli