Hvernig “kerfi” get “ég” notað til að virka sem best
í tilverunni?
8.Kafli – Þekkt viðmiðunar “kerfi”
VI.Gullkorn – spakmæli – dagleg orð
Gullkorn - spakmæli
Víða er hægt að komast yfir
gullkorn, spakmæli, og falleg orð. Þetta
geta verið gullvægar setningar sem sagðar hafa verið af þekktum eða óþekktum
aðilum.
Tökum dæmi um nokkur spakmæli.
Hamingjan vex á okkar eigin akri og hana er ekki hægt að tína í annarra
görðum.
Douglas Jerrold
Lífsviska er meðal annars fólgin í því að leiða hjá sér það sem skiptir
ekki máli.
Lin Yutang
Þú breytir ranglega þegar þú hrósar einhverju sem þú skilur ekki
fyllilega
en þó er enn verra þegar þú fordæmir það.
Leonardo da Vinci
Þegar dagur er að kvöldi kominn skaltu segja skilið við hann.
Á
morgun kemur nýr dagur fullur af fögrum fyrirheitum og
allt of dýrmætur
til þess að vert sé að sóa einu andartaki í gærdaginn.
R.W.Emerson
Albert Einstein
q
Aðferð: Hægt er að nota og finna
spakmæli og gullkorn, í bókum, í dagatölum, á internetinu og víðar. Þeim er síðan hægt að safna saman á góðan
stað, til dæmis í bók, á plakat eða á vefsíðu.
Dæmi um hvar hægt er að finna
spakmæli er í samantekt Helen Exley; Speki dagsins. En það eru til ótal útgáfur af slíkum
skemmtilegum og uppörvandi samantektum.
Vefurinn www.tilvitnun.is inniheldur
mikið magn af tilvitnunum, sem hægt er að nýta við ýmis tækifæri.
q
Aðferð: Bjóða nemendum að finna uppáhaldstilvitnanir
sínar og safna nokkrum þeirra saman.
Einnig er oft hægt að setja sig
á póstlista og fá slík gullkorn send reglulega í tölvupósti. En hægt er að skrá sig á ýmsa slíka
póstlista meðal annars á póstlista á vefunum www.lotushus.is, www.velgengni.is og póstlista Neal Donald Walch, www.nealedonaldwalsch.com, sem skrifaði bókina“Samræður við Guð.
q
Aðferð: Bjóða nemendum að búa til sín eigin
gullkorn, sín eigin spakmæli.
Dagleg orð
Falleg orð er hægt að finna í
bókum, í fjölbreyttu prentuðu formi, internetinu og víðar en einnig er hægt að bara
hugsa þau upp sjálf/ur! Hægt er að tína
til eigið orðasafn, til dæmis orðin kærleikur, heiðarleiki, sannleikur,
háttvísi og þannig má lengi telja.
q
Aðferð: Kenna nemendum að tína til sín eigin fallegu
orð og setja á blað, jafnvel í litla bók og myndskreyta eða líma inn
tilheyrandi myndir við orðin á síðunum.
Síðan væri jafnvel hægt að ramma þau inn! Einnig væri hægt að koma þeim fyrir á góðum
stað á netinu þar sem enn fleiri sjá þau!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli