þriðjudagur, 9. september 2014

Boðorðin 10



Hvernig “kerfi” get “ég” notað til að virka sem best í tilverunni? 

8.Kafli –  Þekkt viðmiðunar “kerfi” 


IV.Boðorðin 10 

Boðorðin 10 eru úr Biblíunni og eru meðal þekktustu orða Jesús Krists en hann sagði að með þeim væri hann að koma á framfæri vilja Guðs til mannanna.   

Á vefsíðunni www.tru.is er að finna boðorðin 10 í upphaflegri útgáfu og í nútímalegri túlkun.

Í efri línunni eru boðorðin eins og þau birtast í Biblíunni.
Í neðri línunni er leitast við að færa þau orð í nútímalegra horf.

1. Ég er Drottinn, Guð þinn, þú skal ekki aðra guði hafa.
1. Gerðu upp við hjáguðina og lifðu fyrir og í kærleika Guðs.

2. Þú skalt ekki leggja nafn Drottins Guðs þíns við hégóma.
2. Notaðu fúslega nafn Guðs og biddu um styrk hans – en til góðra verka.

3. Halda skaltu hvíldardaginn heilagan.
3. Unntu þér reglulegrar hvíldar og tíma til andlegrar íhugunar.

4. Heiðra skaltu föður þinn og móður.
4. Auðsýndu foreldrum þínum virðingu og kærleika. Láttu börnin þín njóta þess sama.

5. Þú skalt ekki mann deyða.
5. Verndaðu lífið og hlúðu að því í öllum myndum.

6. Þú skalt ekki drýgja hór.
6.
Vertu maka þínum trú/r.

7. Þú skalt ekki stela.
7. Berðu virðingu fyrir eigum og réttindum annarra.

8. Þú skalt ekki bera ljúgvitni gegn náunga þínum.
8. Vertu áreiðanleg/ur í hugsunum, orðum og verkum. Efndu loforð þín og baktalaðu engan.

9. Þú skalt ekki girnast hús náunga þíns.
9. Berstu gegn öfund og löngun til að eignast alla hluti.

10. Þú skalt ekki girnast konu náunga þíns, þjón, þernu, fénað né nokkuð það sem náungi þinn á.
10.
Samfagnaðu meðbróður þínum þegar honum vegnar vel í lífinu.

q  Aðferð: Fara með nemendum í gegnum boðorðin og fjalla um þau til að skilningur verði til staðar.                                         

Engin ummæli:

Skrifa ummæli