laugardagur, 27. september 2014

Persónuleikar - Persónuleikagreiningar





9.Kafli - Sjálfstyrkingar“kerfi“ 



IV.Persónuleikar – Persónuleikagreiningar

Persónuleikar

Persónuleika (Karakter) er ekki hægt að búa til með mortéli og steini.   Það getur enginn mótað þinn persónuleika nema þú sjálfur.   Skólastjórinn og kennarinn geta ekki gefið þér þinn persónuleika í gegnum lærdómsbækurnar.    Persónuleiki þinn kemur í gegnum þitt líf og út frá sjálfum þér.   Settu alla þína þekkingu, lærdóm og skólagöngu öðru megin á vogarskálarnar og settu síðan sannleikann og hreinleikann á hinn hluta vogarskálarinnar og það síðarnefnda mun vegna þyngra en það fyrrnefnda.
                                                                                                                            
Gandhi



Persónuleikagreiningar       

Til eru margar tegundir persónuleikagreininga en þær eiga það allar sameiginlegt að draga fram veikleika og styrkleika viðkomandi.   Þannig að hægt er að nýta sér styrkleikana og mögulega vinna með veikleikana með þann tilgang í huga að styrkja þá eiginleika.   Stundum getur manns mesti veikleiki orðið manns mesti styrkleiki.   Stundum er, til dæmis, talað um of mikla nákvæmni sem veikleika en það getur einnig verið styrkleiki þegar um nákvæmnisvinnu er að ræða! 

q  Aðferð: Fara í gegnum veikleikana sína og finna hina hliðina á veikleikunum og snúa þeim við þannig að úr þeim verði styrkleikar!  Þetta er sannarlega eingöngu skemmtilegt að gera!    Á augnabliki getur sjálfsmyndin breyst eins og hendi sé veifað!
Þegar kemur að því að greina persónuleika er hægt að skipta manneskjum upp í flokka.   Þessar flokkanir sem eru kynntar hér í bókinni eru ekki gerðar til að aðgreina heldur til að varpa ljósi á margbreytilegan persónuleika okkar mannveranna.

7 tegundir persónuleika

Hér leitum við aftur í smiðju Kára Eyþórssonar í Skóla Lífsins og teljum upp nokkra persónuleika, ekki síst til að benda á fjölbreytileika okkar mannanna, eins og áður kom fram.
1.      Lærdómsmanneskjan; aflar upplýsinga og stækkar sjóndeildarhringinn.   Oft með öflugt rökvit.
2.      Réttláta manneskjan; þolir illa ranglæti, getur verið í eigin hugarheimi, á auðvelt með að útfæra hugmyndir, vel máli farin og gamansöm.
3.      Manneskja sem er með „fullkomnunaráráttu“; oft fólk sem á erfitt með að skipta um skoðun, vill hafa allt í röð og reglu, oft með fágaðan fatastíl.
4.      Stórar manneskjur, þá bæði líkamlega og í hugsun, geta verið listhneigðar eða stjórnendur.
5.      Listatýpurnar, blíðar og einlægar, hrekklausar og feimnar, áhugasviðið er tengt sköpun, fegurð og fjölbreytileika.   Manneskjur með útgeislun og einlægni, ófeimnar í fatavali.
6.      Framtakssama manneskjan og dugnaðarforkurinn.   Þessir einstaklingar elska líkamlega vinnu enda verkvit þeirra yfirleitt þroskað og öflugt.   Sköpun og frjóleiki er í hugsun þessara einstaklinga.
7.      Leiðtogarnir og stjórnendurnir eru í síðasta flokkinum.   Þessir einstaklingar eru oft stórhuga og víðsýnir.   Réttlætiskennd og hugmyndaauðgi er mikil sem og verkvit og skipulagning.  Manngæska er einnig sterk hjá þessu fólki.

Hvert á ég að stefna?

Í bók Árelíu Eydísar Guðmundsdóttur, Á réttri hillu, tekur hún fyrir Myers-Briggs manngerðarpróf sem víða er notað, af til dæmis af Ráðningarfyrirtækjum, og nýtir það við að greina manngerðir og útbúa spurningar fyrir nemendur svo þeir getið betur fundið sitt áhuga- og hæfnisvið.   Hún gengur út frá að hægt sé að flokka manngerðirnar niður í 16 manngerðartýpur en að lykilspurningar sem hver og einn þurfi að spyrja sig séu:
1.      Hvaðan fæ ég orku?
2.      Hvernig meðtek ég og set fram upplýsingar eðlislægt?
3.      Hvernig tek ég ákvörðun?
4.      Hvaða umhverfi hentar mér í lífi og starfi?

Innsæis- eða skilningshjólið 

Í innsæis- og skilningshjólinu, sem Insights, www.insights.com, hannaði, er talað um persónu manneskjunnar út frá litum.   Það er oftast þannig að manneskja er ráðandi í einum eða tveim litum en hinir litirnar geta einnig verið til staðar en þá oftast í töluvert minna magni.    Öllum er sem sagt skipt niður,  aðallega í einn aðallit og síðan 2 liti, sitt hvoru megin við sem yfirleitt styðja við persónuleika ráðandi litarins.   Litunum er raðað í hring, hjól, og síðan skipt niður eins og kökusneiðum.  Þannig verða kökusneiðarnar á innsæishjólinu átta talsins.   Við skulum skoða nánar innsæishjólið.

Manngerðir innsæishjólsins eru 
1.      Sá sem hvetur aðra til einhvers
2.      Hvatamaðurinn (frumkvöðull)
3.      Hjálparhellan
4.      Stjórnandinn
5.      Sá sem styður
6.      Umbótasinninn
7.      Sá athuguli
8.      Sá sem samræmir.  
Þær samþættast síðan á eftirfarandi hátt.
Gul manngerð er sá sem hvetur aðra (gulur) og hvatamaðurinn (appelsínugulur á hægri hönd) og hjálparhellan (ljós grænn á vinstri hönd )
Rauð manngerð er stjórandinn (rauður) og umbótasinninn (lillablár á hægri hönd)og hvatamaðurinn (appelsínugulur á vinstri hönd)
Græn manngerð er sá sem er styður (grænn) og hjálparhellan (ljós grænn á hægri hönd) og sá sem samræmir (dökk grænn á vinstri hönd)
Blá manngerð er sá athuguli (blár) og sá sem samræmir (dökk grænn á vinstri hönd) og umbótasinninn (lillablár á vinstri hönd)

Persónuleikar greindir eftir fuglategundum
 
Þetta er skemmtilegur samanburður óþekkts höfundar á eiginleikum manna og fugla.  

Dúfa
Nemandinn er samvinnuþýður, afslappaður, vinsamlegur, óformlegur, vill vinna í samvinnu við aðra, viðkvæmur, umhyggjusamur, hlýr, sveiganlegur, sýnir hluttekningu, ábyrgur, umhyggjusamur, leikmaður og leiðbeinandi.
Fálki 
Nemandinn er kappgjarn,  einbeittur, hreinskilinn, afdráttalaus, vill segja öðrum fyrir verkum, jarðbundinn, blátt áfram, árangursmiðaður, tekur stjórn, þorinn, djarfur, tekur áhættu, stjórnsamur og stýrandi.
Páfugl
Nemandinn er hugmyndaríkur, hvatvís, málgefinn, líflegur, vill selja öðrum hugmyndir og verkefni, fjörugur, litríkur, heillandi, töfrandi, áhrifamikill, tilfinningaríkur, opinskár, hvetjandi og draumóramaður. 
Ugla
Nemandinn er nákvæmur, ítarlegur, smámunasamur, vill hugsa hlutina til enda, hljóðlátur, þenkjandi, rökfastur, greinandi, ákveðinn, varkár, verkefnamiðaður og safnar upplýsingum.

q  Aðferð: Hægt er að spyrja nemendur hvaða fugl eigi best við persónueinkenni þeirra. Kannski er persónuleiki nemandans líkur einum af ofangreindum persónuleikum eða nemandinn hefur eitthvað sambærilegt með öllum fuglategundunum!
En það er ekki bara hægt að heimfæra manngerðirnar yfir á fugla heldur einnig yfir á náttúruna!   Hvernig getur grænmeti verið lýsandi fyrir manneskjur!?   Já, nú fáum við að leika okkur aðeins!  

q  Aðferð: Hægt er að nota leiklistina á ýmsa vegu.   Meðal annars er hægt að leika “grænmeti” eins og Kári Eyþórsson í Skóla lífslins kennir svo skemmtilega.   En þá er notast við látbragðsleik án orða, og aðrir eiga síðan að geta upp á hvaða grænmeti er verið að leika!   Síðan hjálpast allir að við að lýsa “persónueinkennum” grænmetisins!    Þetta er mjög skemmtilegur leikur fyrir nemendur á öllum aldri. 

Persónugreiningar eftir fornum indverskum fræðum

Í indversku Ayurveda fræðunum er talað um þrjár manngerðir; Vata, Pitta og Kapha.   Samkvæmt fræðunum þá er oftast ein manngerðin ráðandi en misjafnt er hvort hinar manngerðirnar leynast einnig í viðkomandi manngerð, oftar en ekki er það þá önnur af hinum tveim manngerðunum sem einnig fyrirfinnst hjá viðkomandi.  Í Ayurveda fræðunum er leitað eftir jafnvægi manneskjunnar við eiginleika alheimsins. 
Inn á heimasíðunni, www.ayurbalance.com, er fjallað nánar um manngerðirnar þrjár;
1.      Vata
2.      Pitta
3.      Kapha 

Vata manngerðin er gerð úr eiginleikunum rými og lofti

Fólk með ríkjandi vataþætti í sinni manngerð hefur tilhneigingu til að vera grannt, með áberandi liðamót, hefur viðkvæma húð sem er náttúrulega þurr og þurrt umfangsmikið hár.   Þetta fólk er snöggt og líflegt í hugsun, tali og gjörðum, og eignast vini auðveldlega.   Það er þáttur í loftleika þeirra að vera léttstíga og léttleiki einkennir hlátur þeirra.   Það að hafa áhrif með breytingum er áberandi í fari þeirra.   Þessi manngerð sefur létt og vill vera í hlýju umhverfi.   Sköpunargáfa og áhugi eru aðalsmerki jafnvægis Vata manngerðarinnar.

Pitta manngerðin er gerð úr eiginleikunum eldi og vatni 

Fólk með ríkjandi pittaþætti í manngerð sinni hefur tilhneigingu til að vera í meðaltalinu, hvorki smávaxið né þungt, hefur heita húð, sem er oft frekar rauðleit, og fíngert og viðkvæmt hár.   Hár þessarar manngerðar gránar og þynnist hraðar en hjá hinum tveim manngerðunum.   Pitta manngerðin er mikil fyrir sér, ákveðin í hugsun, tali og gjörðum.   Það er tilgangur í framgangi þeirra og styrkleiki í rödd þeirra.   Metnaður er stór þáttur í þeirra manngerð.   Pitta manngerðin sefur í meðallagi lengi og vill frekar vera í kaldara loftslagi.   Sjálfstraust og frumkvöðlahugsun eru aðalsmerki jafnvægis Pitta manngerðarinnar.

Kapha manngerðin er gerð úr eiginleikunum vatni og jörð

Fólk með ríkjandi kaphaþætti í manngerð sinni hefur tilhneigingu til að vera meira um sig; öflugt og jafnvel samanrekið.   Það hefur þykka slétta, mögulega feita, húð og liðað hár.   Þessar manngerðir búa yfir stöðugleika og eru rólegar í hugsun, tali og gjörðum, og eru rólegar og styðjandi í samböndum.   Það er stöðugleikaþáttur í skrefum þeirra og yfirvegun í brosi þeirra.   Hollusta er rík í þessari manngerð.   Þetta eru miklar svefnpurrkur og finnst óþægilegt að vera í röku umhverfi.   Rólegheit og viss sætleiki eru aðalsmerki jafnvægis Kapha manngerðarinnar.

Hugmyndafræði Ayurveda fræðanna gengur út á heildræna nálgun við jurtir, sérstaka öndunartækni, mataræði og hugsunarhátt sem eru í takt, jafnvægi, við heiminn (umhverfið).   
En það er ekki bara persónuleiki okkar sem er ólíkur heldur líkamsvöxturinn einnig!

Fjórar útgáfur af kvenlíkamanum
Þegar kemur að líkamsvexti okkar þá erum við eina ferðina enn farin að tala um hlutföll.  Í bókinni Vaxi-n eftir Karl Berndsen segir að líkamsbyggingu kvenna megi skipta upp í fjórar líkamsgerðir.   Neðangreind skilgreining á við um þroskaðar konur.   Ef um yngri nemendur er að ræða þá er sniðugt að velta fyrir sér líkamsvexti, hári, fingrum...og jafnvel tásum því þær eru ansi ólíkar!   Við skulum skoða mismunandi líkamsvöxt kvenna samkvæmt skilgreiningu Karls.

 Kvenlíkaminn

V-laga líkami
Axlirnar og/brjóstmálið breiðara en mjaðmirnar.   Þetta kvenfólk á, til dæmis, ekki að nota axlapúða, heldur frekar breikka mjaðmirnar með því til dæmis að vera í fötum með hliðarvösum.
A-laga líkami
Mjaðmamálið er breiðara en brjóstmálið.   Þetta kvenfólk á að forðast að breikka mjaðmirnar með til dæmis vösum og fleiru, en má þá frekar nota axlapúðana eða smart jakka til að breikka axlir til samræmis við mjaðmir.
X-laga líkami
Mjaðma-og brjóstmálið er nánast það sama og mittið er grannt.
I-laga líkami
Mittismálið er 80% af mjaðma- eða brjóstmálinu.   Mjaðma- og brjóstmál eru svipuð.  

q  Aðferð: Láta eldri nemendur finna út hvernig líkamsvöxtur hvers og eins er.   Það eru allir svo flottir eins og þeir eru af Guði gerðir!  Þetta er bara gert til að sýna fjölbreytileikann og að við þurfum ekki öll að vera eins!
Það er bara þannig að útlit okkar kemur innan frá eins og Karl bendir svo réttilega á.   Okkar eigin sýn á okkur sjálf er okkar fegurð.  Aðrir sjá okkur eins og við sjálf sjáum okkur.   Leyfum útgeislun okkar að njóta sín.   Við erum öll falleg, bara hvert á sinn einstaka hátt!  Verum snyrtileg og höfum ofangreindar útlitsgreiningar til hliðsjónar til dæmis við fataval en munum samt að það er okkar „innri maður“ sem er það mikilvægasta í fari okkar, hvernig við erum inni í okkur, hvernig við virðum okkur sjálf og allt í kringum okkur.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli