föstudagur, 25. júlí 2014

Alheimurinn - hvernig er hann?





5.Kafli – Hver er tilvera okkar?



XII.Alheimurinn – hvernig er hann?

Allt er hluti af alheiminum.   Allt er jafnrétthátt í alheiminum.   Manneskjan er jafn rétthá öllu í alheiminum.   Manneskjan getur skynjað, öðlast tilfinningu fyrir alheiminum ef manneskjan leggur sig fram við það.   Allt „talar“ saman!

Sólin, jörðin, tunglið, stjörnurnar og aðrir hnettir í sólkerfinu eru kúlulaga.   Þeir eru eins og hringir þegar horft er á þá.   Orkuflæðið frá þeim er hringlaga.   Hringir eru tákn um eilífðina, endalaust form sem hefur hvorki upphaf né endir.   

Í einni þekktustu sögu seinni tíma, Hringadróttinssögu eftir Tolkien, er hringurinn það sem allt snýst um.   Í bókinni Tolkien og hringurinn eftir Ármann Jakobsson, kemur fram að táknrænt eðli hringsins fari ekkert á milli mála.   Að hringurinn sé hið stóra tákn sögunnar og að hann sé margrætt tákn.   Hringformið tákni eilífðina og sé lokað.   Hringurinn sé þar að auki heillagripur eða bjargvættur. 

Hringur  táknar hringferli tilvistarinnar, í sem víðtækustum skilningi.

Sólin er með mjög sýnilegum orkuhringjum í kringum sig



ü  Lykilskýring: Sólin er forsenda alls lífs
ü  Lykilskýring: Orka sólarinnar gefur frá sér hringbylgjur til umhverfisins
ü  Lykilskýring: Sólin snýst um sjálfa sig réttsælis
ü  Lykilskýring: Jörðin snýst réttsælis umhverfis sólina á sporöskjulaga brautum
ü  Lykilskýring: Klukkan snýst réttsælis
ü  Lykilskýring: Spíralar eru hringir sem sogast upp eða niður
ü  Lykilskýring: Regnboginn er bogi – hálfur hringur
ü  Lykilskýring: Allt er alheimsorka – allt er búið til úr alheimsorkunni

Hringir / hnöttótt form
ü  Lykilskýring: Allt er hringir
ü  Lykilskýring: Sólin er hringur
ü  Lykilskýring: Stjörnurnar eru hringir
ü  Lykilskýring: Jörðin er hringur
ü  Lykilskýring: Loftbóla er hringur
ü  Lykilskýring: Sápukúla er hringur
ü  Lykilskýring: Dropi er hringur
ü  Lykilskýring: Ára mannslíkamans er hringur
ü  Lykilskýring: Baugur í kringum höfðuð manneskjunnar er hringur
ü  Lykilskýring: Fimm arma stjarna passar innan í hring
ü  Lykilskýring: Sex arma stjarna passar innan í hring
ü  Lykilskýring: Kóngulóarvefur passar innan í hring
ü  Lykilskýring: Egg er hringur og/eða ávalur hringur
ü  Lykilskýring: Fruma er hringur
ü  Lykilskýring: Sandkorn er hringur
ü  Lykilskýring: Allt er búið til úr hringlaga formum, eins og punktum
         

Í bókinni Alheimurinn segir orðrétt: „Tengslin sem binda saman efnisþætti fastefna, vökva, lofttegunda og rafgass byggjast á rafsegulkrafti“ (Alheimurinn, blaðsíða 30).
v  Tilgangur: Að skýra út hvernig alheimurinn er og allt sem í honum er.   

ü  Skýring:  Jörðin, andrúmsloftið, sólin, tunglið, stjörnurnar, jarðvegurinn, vötnin, plönturnar, dýrin og manneskjan eru sett saman úr litlum einingum.   Það er hægt að segja að ALLT sé sett saman úr einingum eins og litlum legokubbum, eins og við höfum áður komið inná í kafla 4.VIII.   Hver eining er orka.  ALLT er búið til úr orku.   Manneskjan er orka.   Þessi orka er kölluð alheimsorka.  Orka sólarinnar er í raun bæði kölluð alheimsorka og ljósorka.   Öll orka er í bylgjum, allt gefur frá sér orku í formi bylgna.   Bylgjur geta verið hljóðbylgjur, ljósbylgjur, rafbylgjur og svo má áfram telja.   Það eru þessar fjölmörgu bylgjur sem gera okkur kleift að horfa á sjónvarpið, hlusta á útvarpið, nota farsíma og padda og vera á internetinu.   Ljósorka er til dæmis samsett úr rafsviðsbylgju og segulsviðsbylgju sem eru hornréttar hvor á aðra.   Himinn er fullur af orku og er í raun eins og fegursta flugeldasýning.   Allt er orka og allt gefur frá sér orku.   Allt er í raun lifandi en það sem við köllum „lifandi“ eins og manneskjan, dýr og plöntur gefa frá sér meiri orku en smíðaðir hlutir t.d.húsgögn en tré , sem húsgagn er mögulega búið til úr, gaf frá sér meiri orku sem jarðbundið „lifandi“ tré.
ü  Skýring: „Ljóstillífun er það lífefnafræðilega ferli sem plöntur, þörungar, sumar bakteríur og einstaka frumdýr nota til að vinna orku úr sólarljósi til að framleiða næringu. Ljóstillífun er mjög mikilvæg lífríki jarðar þar sem nær allar lífverur þar treysta beint eða óbeint á þá orku sem til verður við ljóstillífun, einnig mynda nær allar lífverur sem stunda ljóstillífun súrefni sem aukaafurð.   Lífverur sem eru færar um ljóstillífun eru kallaðar ljósnæmar lífverur” (www.wikipedia.org).

Bylgjur
ü  Lykilskýring: Útvarpsbylgjur
ü  Lykilskýring: Sjónvarpsbylgjur
ü  Lykilskýring: Hárbylgjur manneskju
ü  Lykilskýring: Hafbylgjur


Straumar
ü  Lykilskýring: Loftstraumar
ü  Lykilskýring: Hafstraumar
ü  Lykilskýring: Jákvæðir straumar frá manneskju
ü  Lykilskýring: Neikvæðir straumar frá manneskju

Geislar
ü  Lykilskýring: Jákvæð útgeislun frá manneskju
ü  Lykilskýring: Neikvæð útgeislun frá manneskju
ü  Lykilskýring: Geislar sólar
ü  Lykilskýring: Ljósgeislar
ü  Lykilskýring: Rafgeislar

Ljós
ü  Lykilskýring: Kertaljós
ü  Lykilskýring: Ljós sálarinnar
ü  Lykilskýring: Ljós heimsins
ü  Lykilskýring: Lífsins ljós
ü  Lykilskýring: Virkjað ljós; perur, gaslampar

Segull / Pólar / rafmagn
ü  Lykilskýring: Segulsvið jarðar
ü  Lykilskýring: aðdráttarafl jarðar
ü  Lykilskýring: aðdráttarafl manna, dýra, hluta vegna aðdráttarafls jarðar
ü  Lykilskýring: Aðdráttarafl (attraction) manneskju
ü  Lykilskýring: Pólar jarðar; norður- og suðurskaut jarðar
ü  Lykilskýring: Manneskja; vinstri hlið mínus hlaðin / hægri hlið plús hlaðin.
ü  Lykilskýring: Norðurljósin eru rafmagnshlaðnar eindir sem glitrar á
ü  Lykilskýring: Tilveran er í raun rafmagn, plús og mínus hlaðin, og allt leitar jafnvægis milli “póla.”

q  Aðferð: Bjóða nemendum að fræðast um ljóstillífun, jafnvel gera smá kynningu um það ferli og hengja upp á vegg, setja á glærur eða vinna á hvern þann veg sem best hentar hverju sinni.

q  Aðferð: Leyfa nemendum að skoða hluti í smásjá.
q  Aðferð: Sýna nemendum mjög mikið stækkaðar myndir en þá sést hvernig myndin er sett saman úr röstum, punktum.   Nemandinn getur þá betur skilið að það sem hann skynjar sem heilsteypta mynd / heilsteypta einingu er í raun samsett úr mörgum litlum punktum. 
q  Aðferð: Gefa nemendum færi á að velta fyrir sér úr hverju allt sé búið til, hvort sem um er að ræða sjáanlega hluti eða lofttegundir.
q  Aðferð: Biðja nemendur að nefna dæmi um spírala í náttúrunni og hvernig þeir myndist.

q  Aðferð: Bjóða nemendum að koma með fleiri dæmi um bylgjur, strauma, geisla, ljós og segul.

Í kristnum fræðum er regnboginn sáttmáli milli Guðs og manna.   Guð lofaði Nóa, sem byggði örkina hans Nóa, og lifði af syndaflóðið ásamt fjölskyldu sinni og dýrum sem honum var uppálagt að bjarga, að aldrei framar myndi hann tortíma sálum í mannslíkömum og dýrum með slíku flóði.   Sagt er að þegar regnboginn birtist okkur þá sé Guð að minna á þennan sáttmála sem hann gerði við mennina.

q  Aðferð: Skoða regnbogann þegar hann er okkur sýnilegur, teikna hann og skrifa um hvernig hann birtist okkur og hvaða þýðingu hann hefur fyrir okkur.
ü  Skýring: ALLT fer í hringi. Mínútan, klukkustundin, sólarhringurinn, mánuðurinn, árið, áratugurinn, árhundraðið, vatnið gufar upp og verður að rigningu sem aftur fellur til jarðar og myndar vötn, ár og sjó sem síðan aftur stígur upp þegar heitt er í veðri, plöntur verða til úr fræi, þær vaxa og deyja síðan en þá eru þær oft búnar að sá öðru fræi sem síðan vex...

Hver hefur skapað blómin björt

Hver hefur skapað:,: blómin björt?:,:
Hver hefur skapað blómin björt?
Guð á himninum.
Hver hefur skapað :,: fuglana? :,:
Hver hefur skapað fuglana?
Guð á himninum.
Hver hefur skapað :,: stjörnurnar? :,:
Hver hefur skapað stjörnurnar?
Guð á himninum
Hver hefur skapað blómin björt,
Fuglana, stjörnurnar?
Hver hefur skapað þig og mig?
Guð á himninum.
                                                               Texti: Mildred Adair
                                                               Lag: Höfundur ókunnur

Allt byrjar með því sem hægt er að kalla kjarna.   Kjarni tilvistar okkar er sólin og jörðin.   Kjarni tilvistar nýfædds barns eru sæði föður og egg móður.   Kjarni tilvistar spendýra eru sæði og egg sem verða að fóstri.  Kjarni tilvistar fugla, og annarra dýra sem verpa eggjum, er í raun sá sami, nema frjógvun á sér stað, eggið kemur úr móðurkviði og fóstrið vex áfram í egginu þangað til það er tilbúið til að koma í heiminn.   Fræ, lítill kjarni, er upphaf plantna.   Frjókorn hafa sama hlutverk og sáðfrumur.   Þegar flutningur frjókorna hefur átt sér stað yfir í fræni sem er kvenlegur hluti blómplöntu þá getur frjóvgun átt sér stað.   Býflugur frjógva blóm með því að bera frjógvunarvökvann, vökvann með frjókornunum í, til þeirra.   Það er líklega engin tilviljun að oft er vísað í frjósemi manneskjunnar með því að vísa í býflugurnar og blómin en í Biblíunni stendur að Guð hafi skapað manneskjuna og býflugurnar á sjötta, og síðasta, degi sköpunarsögunnar.   Fuglar dreifa og stækka berjalönd með því að borða berin og losa sig síðan við kjarna þeirra í gegnum hægðir sínar.   Þau fræ geta síðan orðið grundvöllurinn að stórum berjabreiðum á nýjum stað.   Allt byrjar smátt, í kjarnanum, og vex síðan eða bætir við sig og stækkar þannig.    Þannig bætast lög utan á kjarnann.   Endurnýjun alls kemur einnig frá kjarnanum.  Endurnýjunin á sér stað innan frá og þannig til dæmis flagnar húð manneskjunnar þegar húðin endurnýjar sig innan frá og sleppir ysta húðlaginu.
 
Einnig væri hægt að sjá fyrir sér að geislar sólarinnar séu lífskraftur Guðs sem berst til móður jarðar sem nærir sálir manna og dýra.   Þannig getur sólin, Guð, af sér sinn þátt, sitt erfðaefni, til að skapa sálirnar, manneskjurnar, og móðir jörð leggur til sitt erfðaefni úr iðrum jarðar, þar sem sálirnar verða til og þroskast áður en þær eru sendar á yfirborð jarðar, til mannheima.    Geisli sólar kemur í iður jarðar með sömu hreyfingu, hreyfiafli, og sæði manns ferðast að eggi í legi konu.   Þannig verður sálin til úr geislum sólar og segulmagni móður jarðar.   Móðir jörð sér síðan um að fæða sálirnar, eins og móðir eða spendýr fæðir afkvæmi sitt og faðirinn, sólin, sér um að halda hita á sálunum og lífinu á jörðinni. 

Okkar heimur er eitt sólkerfi.   Innan sólkerfisins er síðan hnötturinn jörðin og aðrir hnettir sem líf hefur ekki verið vakið á.   Eldgígar á hnöttunum geta verið leið sálna að kjarna hnattarins og frá kjarna hnattarins.   En munum að líf hefur aðeins verið vakið á einum hnetti, alveg eins og oftast er bara eitt egg í legi konu frjógvað.   Ef yfir okkar sólkerfi ríkir einn andi sem hefur legið, jörðina og þar með jarðarmiðju, og sólina, sem sæðis-og lífsgjafa, þá er ekki ósennilegt að önnur sólkerfi séu einnig eins upp byggð!   Heilagur andi vakir yfir og stýrir öllu innan sólkerfisins, er sólkerfið í heild sinni.   Þannig er heilagur andi ávallt alltumlykjandi.   Þannig væri heilagur andi sólkerfið í heild sinni með jörðina sem uppeldis- og þroskabraut sálnanna og sólin væri það sem gefur orku sína, geisla og hita til að skapa líf í byrjun og viðhalda því.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli